Neyðarlínan 112

Neyðarlínan 112 Markmiðið er að fræða og efla vitund á starfsemi Neyðarlínunnar, efla forvarnir og meðvitund. Neyðarlínan ohf - Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík.

Sími skrifstofu: 570-2000. Símanúmerið er 1-1-2 ef þú þarft aðstoð lögreglu, slökkviliðs, sjúkrabíls, björgunarsveita, landhelgisgæslu eða annarra viðbragðsaðila. Neyðarlínan hefur það sem hlutverk að efla öryggi og velferð á Íslandi með því að veita fyrsta flokks neyðar- og öryggisþjónustu. Eitt neyðarnúmer fyrir allt landið samræmir viðbrögð og boðun björgunar- og neyðarsveita á öllu landinu. Þa

ð er markmið Neyðarlínunnar að þjónusta fyrirtækisins uppfylli ávallt kröfur og væntingar viðskiptavina og starfsfólks um fagleg vinnubrögð. Til þess að vinna að þessum markmiðum eru þrjú gildi í hávegum höfð: Hjálpsemi – Viðbragðsflýtir - Fagmennska. Hjálpsemi felur í sér alla þá mögulegu aðstoð (þjónustu) sem hægt er að veita viðskiptavinum fyrirtækisins. Í þessu felst þolinmæði og frumkvæði. Í hjálpsemi felst einning samstarf og aðstoð við vinnufélaga og samstarfsaðila. Viðbragðsflýtir felur í sér hröð og örugg viðbrögð gagnvart samstarfsaðilum, vinnufélögum og viðskiptavinum. Fagmennska felur í sér fagleg vinnubrögð gagnvart viðskiptavinum, samstarfsaðilum og vinnufélögum. Fagleg vinnubrögð byggja á að farið sé eftir starfsáætlunum og settum ferlum. Í fagmennsku felast gæði sem öllu starfsfólki ber að halda í heiðri við vinnu sína. VINSAMLEGAST LESIÐ ÞETTA ÁÐUR EN INNLEGG ER SETT Á SÍÐU NEYÐARLÍNUNNAR

1. HVERNIG ER UMSJÓN MEÐ ÞESSARI SÍÐU HÁTTAÐ? Vinsamlegast athugið að Neyðarlínan fylgist ekki með þessari síðu eða innleggjum sem sett eru á hana allan sólarhringinn. Þau sem sjá um uppfærslu hennar sinna því samhliða öðrum störfum innan fyrirtækisins. Svör við spurningum eða ábendingum kalla oftar en ekki á nánari skoðun. Því er ekki hægt að tryggja að svör verði sett inn strax við spurningum sem settar eru inn á síðuna. Ef óskað er eftir skjótri aðstoð viðbragðsaðila skal undantekningarlaust hringja beint í 1-1-2. Ef erindið er af öðrum toga vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Neyðarlínunnar í síma 570-2000. Sömuleiðis er hægt að koma ábendingum á framfæri um hvaðeina með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].

2. HVAÐ Á EKKI HEIMA Á ÞESSARI SÍÐU? Innlegg eða athugasemdir hér á síðu Neyðarlínunnar sem falla ekki að skilyrðum Facebook (sjá hér: www.facebook.com/terms.php?ref=pf) eða fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa, innihalda ásakanir um refsiverða háttsemi eða hvatningu til að fremja afbrot verður þegar í stað eytt. Innlegg sem sett eru inn af öðrum aðilum eru sett þar inn á ábyrgð viðkomandi einstaklings eða lögaðila. Vinsamlegast athugið að Facebook er ekki rétti staðurinn til að setja inn upplýsingar um tiltekin mál eða kvartanir um störf tiltekinna neyðarvarða Neyðarlínunnar. Óánægju með þjónustu er rétt að koma á framfæri við gæðastjóra fyrirtækisins í gegnum síma eða tölvupósti. Gæðastjóri Neyðarlínunnar er Garðar S. Gíslason, sími 570-2000 og netfang [email protected]. Myndir sem hér er að finna úr starfi Neyðarlínunnar er ekki heimilt að birta í fjölmiðlum eða með öðrum sambærilegum hætti eða sambærilegum miðlum nema með leyfi Neyðarlínunnar. AÐ HAFA SAMBAND VIÐ NEYÐARLÍNUNA

Ef óskað er eftir skjótri aðstoð viðbragðsaðila skal undantekningarlaust hringja beint í 1-1-2. Sömuleiðis er hægt að koma ábendingum á framfæri um hvaðeina með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum að nú gengur yfir bylgja svika SMS sem rétt er að vara við. Skilaboðin eru ...
04/06/2026

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum að nú gengur yfir bylgja svika SMS sem rétt er að vara við. Skilaboðin eru látin líta út fyrir að koma frá umferðarlögreglu og fólki bent á að greiða sekt með því að smella á hlekk í skilaboðunum. Eins og í öðrum svikapóstum er gefin upp stuttur fyrirvari til að greiða sektina og er það eitt af merkjum þess að um svik er að ræða.
Hafi einhver fallið fyrir þessum skilaboðum er viðkomandi bent á að hafa strax samband við viðskiptabankann sinn til að takmarka tjón sitt.
Tilkynna svo málið til lögreglu á

Þegar þrjótar blekkja og svíkja pening af fólki, kúga það eða áreita á netinu kallast það netglæpur. Netsvik og stafræn brot eru sífellt að færast í aukana og ...

Að gefnu tilefni minnum við á þessi mikilvægu skilaboð frá samstarfsfólki okkar hjá Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.
26/05/2026

Að gefnu tilefni minnum við á þessi mikilvægu skilaboð frá samstarfsfólki okkar hjá Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.

Með hækkandi sól þá eykst notkun rafmagnshlaupahjóla - hugum vel að hleðslu þeirra 👇👇

Vilt þú starfa þar sem hver mínúta skiptir máli?Við hjá Neyðarlínunni leitum að öflugum neyðarvörðum í 100% starf til að...
11/05/2026

Vilt þú starfa þar sem hver mínúta skiptir máli?

Við hjá Neyðarlínunni leitum að öflugum neyðarvörðum í 100% starf til að sinna svörun fyrir neyðarnúmerið 112, netspjalli og virkjun viðeigandi viðbragðsaðila um land allt.

Starfið er krefjandi, ábyrgðarmikið og afar gefandi

Ef þú hefur sterka þjónustulund, heldur ró þinni undir álagi og vilt vinna með frábærum hópi fólks þá viljum við heyra frá þér.

Neyðarlínan óskar eftir að ráða neyðarverði til að annast svörun fyrir neyðarnúmerið 112 ásamt netspjalli, greina erindi, leiðbeina og virkja viðeigandi viðbragðsaðila. Boðið er upp á krefjandi, ábyrgðarmikið en jafnframt gefandi framtíðarstarf í traustu vinnu umhverfi. ...

Í dag er alþjóðlegur dagur slökkviliðsmanna og kvenna. Við óskum þeim öllum til hamingju með daginn og vonum að þau þurf...
04/05/2026

Í dag er alþjóðlegur dagur slökkviliðsmanna og kvenna. Við óskum þeim öllum til hamingju með daginn og vonum að þau þurfi sem allra minnst að gera í dag sem aðra daga.

Við vekjum athygli á hópslysaæfingu sem haldinn verður á Suðurnesjum laugardaginn 2. maí. Gera má ráð fyrir aukinn umfer...
29/04/2026

Við vekjum athygli á hópslysaæfingu sem haldinn verður á Suðurnesjum laugardaginn 2. maí. Gera má ráð fyrir aukinn umferð viðbragðsaðila og lokunum á sumum svæðum.

Æfingar eru mikilvægar til að samstilla alla viðbragðsaðila þannig að þegar að raun atburðir verða þá gangi allt hratt og vel fyrir sig.

🚑 Hópslysaæfing – Laugardaginn 2. maí 2026
Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum standa fyrir umfangsmikilli hópslysaæfingu í Reykjanesbæ næstkomandi laugardag. Af því tilefni gætu íbúar orðið varir við aukna umferð viðbragðsaðila á svæðinu, auk tímabundinna lokana við Gróf, Ægisgötu og Keflavíkurhöfn. Æfingin hefst kl. 11:00 og lýkur um 14:00.
Til þess að æfingin endurspegli raunverulegar aðstæður sem best verður hluti hennar framkvæmdur í og við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Af þeim sökum má búast við fjölda viðbragðsaðila á HSS og á nærliggjandi svæðum á meðan æfingunni stendur.
Við biðjumst velvirðingar á því ónæði sem kann að skapast og þökkum íbúum fyrir skilninginn.

Við tökum undir ábendingu félaga okkar hjá Brunavarnir Stykkishólms og nágrennis - þar sem þurrt er í lofti víða um land...
22/04/2026

Við tökum undir ábendingu félaga okkar hjá Brunavarnir Stykkishólms og nágrennis - þar sem þurrt er í lofti víða um land er nauðsynlegt að fara varlega með eld í kringum gróður. Lítill neisti verður auðveldlega að stóru báli.

Elsku öll förum varlega og kveikjum ekki í því núna er gróðurinn þurr og eldfimur og verður líklega næstu daga og vikur.

Farið varlega á morgun.
25/03/2026

Farið varlega á morgun.

Á morgun, fimmtudaginn 26. mars er mikilvægt að meta hvort ferðir á þeim svæðum sem veðrið verður verst séu nauðsynlegar. Ef hægt er, verið sem minnst á ferðinni þar sem varasamt ferðaverður verður á stórum hluta landsins og veruleg hætta á foktjóni.

✔️ Fylgist með veðri á vedur.is
✔️ Frestið ferðum ef hægt er
✔️ Festið lausamuni

Gott skipulag dregur úr áhættu og auðveldar störf viðbragðsaðila.

Hér er hægt að fylgjast með hvar og hvenær veðrið verður á morgun: https://www.vedur.is/vidvaranir

Förum varlega í umferðinni í dag. Það eru allskonar furðuverur á ferðinni.
18/02/2026

Förum varlega í umferðinni í dag. Það eru allskonar furðuverur á ferðinni.

16/02/2026

Skyndihjálparmanneskjur ársins 2025 eru feðginin Hinrik Hauksson og Kristín Andrea Hinriksdóttir. Þau komu Bríeti Kolbrúnu, systur Kristínar, til bjargar er hún fór í hjartastopp á heimili fjölskyldunnar.

Gott samstarf innhringjanda og neyðarvarðar er lykilatriði sem svo sannarlega sannaði sig þarna!

15/02/2026

Ef þið eruð á Norðurlandi í dag ekki láta 1-1-2 daginn fara fram hjá ykkur.

Haldið upp á 1-1-2 daginn í dag á Glerártorgi kl. 12-15.

Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir kl. 12:00 á planinu fyrir framan Nettó.

Björnis brunabangi kíkir við kl. 12.

Skyndihjálparmanneskjur ársins 2025 verða útnefndar kl. 14:00

Veittar verða viðurkenningar í Eldvarnargetraun Landssambands Slökkviliðs og sjúkraflutningamanna.

Address

Skógarhlíð 14
Reykjavík
105

Telephone

+3545702000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Neyðarlínan 112 posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Neyðarlínan 112:

Share