07/08/2026
SAMIÐ UM KAUP Á STÖÐVUM OG STEINEFNI
📝Betri samgöngur hafa gert tvo mikilvæga efniskaupasamninga vegna uppbyggingar fyrstu lotu Borgarlínu.
➡️Samið var við danska fyrirtækið HMS Industri A/S um framleiðslu og afhendingu á 26 Borgarlínustöðvum. Fyrirtækið hefur nýlega afhent 29 stöðvar fyrir léttlestarkerfi Kaupmannahafnar.
➡️Samningur var einnig gerður um kaup á steinum fyrir stöðvar, brautarpalla og aðliggjandi almenningsrými. Samið var við danska fyrirtækið Zurface A/S.
📍Báðir samningar voru nokkuð lægri en kostnaðaráætlun en heildarsamningsverð er rúmar 10 milljónir evra án virðisaukaskatts eða tæpur einn og hálfur milljarður íslenskra króna.
Betri samgöngur ohf.
🔗Frétt í fyrstu ummælum: 👇