Gulur september

Gulur september Gulur september er samvinnuverkefni sem stýrt er af embætti landlæknis.

Að verkefninu standa félagasamtök og stofnanir sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.

Tilnefningar óskast – Viðurkenning LífsbrúarLífsbrú veitir árlega viðurkenningu til einstaklings og liðsheildar sem hafa...
05/08/2026

Tilnefningar óskast – Viðurkenning Lífsbrúar

Lífsbrú veitir árlega viðurkenningu til einstaklings og liðsheildar sem hafa lagt sitt af mörkum til sjálfsvígsforvarna á Íslandi.

Viðurkenningin er veitt fyrir mikilvægt framlag til að auka þekkingu, opna samtalið og stuðla að bættri heilsu og líðan landsmanna.

Nú minnum við á að hægt er að senda inn tilnefningar.

Þekkir þú einstakling, hóp, félagasamtök, stofnun eða teymi sem hefur unnið gott og mikilvægt starf á þessu sviði?

Við hvetjum þig til að senda inn tilnefningu 💛

Fyrri handhafar viðurkenningarinnar eru:

Árið 2025
• Sr. Svavar Stefánsson
• Geðgjörgæsla Landspítalans, 32C

Árið 2024
• Wilhelm Norðfjörð
• Píeta samtökin

Hér er hlekkur á tilnefningarformið: https://island.is/forvarnir-sjalfsviga/vidurkenning-lifsbruar

💛

Vöndum okkur þegar við fjöllum um sjálfsvíg💛Orðalag og framsetning skipta máli þegar við fjöllum um sjálfsvíg – hvort se...
28/07/2026

Vöndum okkur þegar við fjöllum um sjálfsvíg💛

Orðalag og framsetning skipta máli þegar við fjöllum um sjálfsvíg – hvort sem það er í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum eða í annarri opinberri umræðu.

Á meðfylgjandi póstkortum má finna einfaldar og mikilvægar leiðbeiningar um það sem mælt er með og það sem forðast ætti.

Meðal þess sem mikilvægt er að hafa í huga er að einfalda ekki ástæður sjálfsvígs eða rekja það til eins ákveðins atburðar. Sjálfsvíg eiga sér flóknar og samverkandi orsakir og einfaldaðar skýringar geta verið bæði villandi og særandi fyrir aðstandendur.

Við hvetjum öll sem birta efni tengt sjálfsvígum og sjálfsvígsforvörnum til að kynna sér ráðleggingarnar og hafa þær við höndina. Ábyrg og yfirveguð umfjöllun getur dregið úr fordómum, miðlað von og bent fólki á að hjálp sé í boði.

📮 Hægt er að fá póstkortin útprentuð með því að senda tölvupóst á [email protected]

Rafræna útgáfu má nálgast hér:
https://assets.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5jkToqwpLdWLQJxPtCmByE/8f2e865e8513fa56f42c62b4ca8c0674/Sj%C3%A1lfsv%C3%ADgsforvarnir_fj%C3%B6lmi%C3%B0lar_2025_POSTKORT_lok.pdf

Vöndum orðin – þau geta haft áhrif. 💛

Mikilvæg samtöl efla samstarfið 💛Það var ánægjulegt að fá Oddnýju Jónsdóttur, formann stjórnar Píeta, í heimsókn til okk...
24/07/2026

Mikilvæg samtöl efla samstarfið 💛

Það var ánægjulegt að fá Oddnýju Jónsdóttur, formann stjórnar Píeta, í heimsókn til okkar í embætti landlæknis. Við áttum gott og gefandi samtal um sjálfsvígsforvarnir, starf Lífsbrúar og vitundarvakningarátakið Gulur september.

Öflugar sjálfsvígsforvarnir byggjast meðal annars á samtali, samvinnu og sterkum tengslum þeirra sem vinna að sameiginlegu markmiði. Við fögnum þessari góðu tengingu og tækifærinu til að miðla reynslu, þekkingu og hugmyndum.

Kærar þakkir fyrir komuna og dýrmætt samtal, Oddný 💛

💛
30/06/2026

💛

✨ Nú er fjórum af tuttugu og s*x aðgerðum í Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025 – 2030 lokið. Þar á meðal er innleiðing nýrra ráðlegginga um ábyrga umfjöllun fjölmiðla um sjálfsvíg og fræðsla til fjölmiðlafólks og háskóla sem kenna blaðamennsku og fjölmiðlafræði.

✨ Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg getur skipt sköpum – hún getur aukið þekkingu, dregið úr fordómum og hvatt fólk til að leita sér aðstoðar þegar á þarf að halda.

✨ Þetta er mikilvægt skref í að efla sjálfsvígsforvarnir og styðja við upplýsta og örugga umræðu um geðheilsu og sjálfsvíg.

🔗 https://island.is/s/landlaeknir/frett/adgerdaaaetlun-til-ad-faekka-sjalfsvigum-fjorum-adgerdum-lokid

Lífsbrú vinnur að því að samræma verklag og fræða lykilaðila í sjálfsvígsforvörnum 💛
19/06/2026

Lífsbrú vinnur að því að samræma verklag og fræða lykilaðila í sjálfsvígsforvörnum 💛

Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna. Verkefni

💛 Tilnefningar óskast – Viðurkenning LífsbrúarLífsbrú veitir árlega viðurkenningu til einstaklings og liðsheildar sem ha...
09/06/2026

💛 Tilnefningar óskast – Viðurkenning Lífsbrúar

Lífsbrú veitir árlega viðurkenningu til einstaklings og liðsheildar sem hafa lagt sitt af mörkum til sjálfsvígsforvarna á Íslandi.

Viðurkenningin er veitt fyrir mikilvægt framlag til að auka þekkingu, opna samtalið og stuðla að bættri heilsu og líðan landsmanna.

Nú minnum við á að hægt er að senda inn tilnefningar.

Þekkir þú einstakling, hóp, félagasamtök, stofnun eða teymi sem hefur unnið gott og mikilvægt starf á þessu sviði?

Við hvetjum þig til að senda inn tilnefningu 💛

Fyrri handhafar viðurkenningarinnar eru:
Árið 2025
• Sr. Svavar Stefánsson
• Geðgjörgæsla Landspítalans, 32C

Árið 2024
• Wilhelm Norðfjörð
• Píeta samtökin

Hér er hlekkur á tilnefningarformið: https://island.is/forvarnir-sjalfsviga/vidurkenning-lifsbruar

💛
21/05/2026

💛

Undirbúningur fyrir Gulan september er kominn á fullt 💛Það er einstaklega ánægjulegt að sjá gul reiðhjól birtast víða um...
13/05/2026

Undirbúningur fyrir Gulan september er kominn á fullt 💛

Það er einstaklega ánægjulegt að sjá gul reiðhjól birtast víða um bæinn í tengslum við átakið Gul hjól – góð ferð, vitundarvakningu um að tekið sé eftir virkum vegfarendum, sem Reiðhjólabændur hafa sett upp samhliða Hjólað í vinnuna.

Herferðin hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli undanfarna daga og minnir okkur fallega á að Gulur september nálgast — vitundarvakning um sjálfsvígsforvarnir, samtal, stuðning og von.

Við hlökkum til að sjá gulan lit lýsa upp samfélagið með okkur í september.

📸 Mynd: Sigurður Jónas Eggertsson
💛

💛 Þökkum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í Gulum september í ár og sýndu geðrækt og sjálfsvígsforvörnum stuðning á einn eða...
18/12/2025

💛 Þökkum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í Gulum september í ár og sýndu geðrækt og sjálfsvígsforvörnum stuðning á einn eða annan hátt Um 40 viðburðir rötuðu inn á dagatalið á heimasíðunni gulurseptember.is! Við vitum að þeir voru fleiri, m.a. voru gular messur víða um landið.
🎗️Þó svo að vitundarvakningin standi yfir frá 1.september-10.október þá stendur vinnan við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir yfir allt árið um kring hjá þeim stofnunum og félagasamtökum sem koma að Gula september.

🎄 Hlýjar kveðjur með óskum um gleðileg jól
Fyrir hönd undirbúningshópsins
Anna Margrét

Myndir frá opnunarviðburðinum 1.september í Samfélagshúsinu Vitatorgi
Ljósmyndari: Pétur Fjeldsted
Blóm: Burkni Blómabúðin
Veitingar: Bakarameistarinn og Myllan
Gulur kristall frá Ölgerðinni

Nýtum tæknina til geðræktar með verkfærum jákvæðrar sálfræði – kynning á HappApp.Rafrænt fræðsluerindi á vegum embættis ...
10/12/2025

Nýtum tæknina til geðræktar með verkfærum jákvæðrar sálfræði – kynning á HappApp.

Rafrænt fræðsluerindi á vegum embættis landlæknis.

Helga Arnardóttir heilsusálfræðingur og verkefnastjóri geðræktar hjá embætti landlæknis flytur.

Gulur september - Rafrænt fræðsluerindi á vegum embættis landlæknis.Helga Arnardóttir heilsusálfræðingur og verkefnastjóri geðræktar hjá embætti landlæknis f...

Address

Katrínartún 2
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gulur september posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share