Vatnsá í Heiðardal Á svæðinu er eingöngu heimilt að veiða á flugu og veiða á agnhaldslausar flugur, þá er óheimilt að nota kaststangir við veiðarnar. Heimilt er að drepa 2 laxa á stöng á dag en þó aðeins laxa undir 68 cm , öllum silung er sleppt. Öllum laxi er sleppt í okt. Veiðihús. Í veiðihúsið er heimilt að koma 1 klukkustund fyrir veiðitíma og vera búið að rýma húsið ávallt kl.13:00 á brottfar
adögum. Þrífa skal lauslega yfir húsið fyrir brottför og taka allt rusl. Í húsinu eru 4 svefnherbergi með aðstöðu fyrir tvo hvert þeirra. Gasgrill og lyklar af húsinu eru á staðnum. Veiðitími. Frá 25/7 – 20/9 er veitt frá 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00
Frá 20/9 – 1/10 er veitt frá 07:00 – 13:00 og 14:00 – 20:00
Frá 1/10 – 10/10 er veitt frá 08:00 – 20:00 Á skiptidögum má byrja kl. 14:00
Veitt er frá kl. 07 – 13 á heilu dögunum en á skiptidögum skal veiði lokið kl. 12:00
Í vorveiði er veitt frá 07:00 – 13:00 og frá 16:00 – 22:00. Ath. öllum silung sleppt. Ath. Að akstur utan vega er bannaður. Kerlingadalsá er jökulá að uppruna, en til hennar fellur m.a. Vatnsá og nokkrir lækir. Veiðimörk eru frá Fagradal/Höfðabrekku og niður að sjó. Fagridalur er vestan megin við ána en Höfðabrekka er austan megin við. Jökul litur kemur í ánna við mikil hlýindi og miklar rigningar, og gjarnan má sjá mun á ánni fyrir og eftir hádegi. Liturinn minkar þegar líður á sumarið og verður áin oft mjög tær frá miðjum ágúst, þó alltaf lítillega grá. Veitt er á 2 stangir í senn og fylgir þá Heiðarvatn með í leyfunum ef menn kjósa að fara þangað frekar. Ekki er nein gisting sem tilheyrir leyfunum. Fluga er leyfilegt agn og öllu sleppt. Veitt er frá morgni til kvölds. Skrá afla á netfangið [email protected]
Heiðarvatn við Vík í mýrdal. Skyldu slepping á öllum fiski. Veiðitími er frá 07:00 – 23:00. Ekki er um neina gistingu að ræða og bannað er að tjalda við vatnið. Munið að hirða allt rusl við brottför. Ath að aðeins er keyrt að vatninu við víkina. Heimilt er að veiða á flugu í Heiðarvatni án agnalds. Veiðihús er hægt að leiga með Heiðarvatni til 20. júlí ár hvert.