13/08/2026
Verður þú vör/var við lyfjaskort í starfi þínu?
Þegar lyfjaskortur kemur upp er sem betur fer í flestum tilfellum hægt að leysa hann án aðkomu læknis þökk sé góðu samstarfi Lyfjastofnunar við markaðsleyfishafa, lyfjaheildsölur og heilbrigðisstarfsfólk. Þrátt fyrir þetta getur það komið fyrir að lyf skortir í einhvern tíma.
Mikilvægt er að Lyfjastofnun hafi upplýsingar um lyfjaskort svo unnt sé að grípa til aðgerða ef þarf til að lágmarka áhrif lyfjaskorts á lyfjanotendur eins og hægt er.
Lyfjastofnun hvetur starfsfólk apóteka sérstaklega til að tilkynna lyfjaskort í gegnum vef stofnunarinnar. Það er nafnlaust og tekur stutta stund. Tilkynningin fer beint til lyfjaskortsteymis okkar sem skoðar málið nánar og leitar úrræða sé þess þörf.
Takk fyrir að leggja þitt af mörkum við að draga úr áhrifum lyfjaskorts á lyfjanotendur.