Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) sinnir slökkvistarfi og sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu.

Við sinnum björgun úr sjó og vötnum ásamt björgun utan vega á okkar starfssvæði. Einnig aðstoðum við önnur slökkvilið í landinu þegar eftir því er leitað, ásamt því að sinna eldum í skipum við land og á hafi úti þegar svo ber við. Slökkvistarfið er fjölbreytt og getur verið allt f rá litlum bruna í ruslatunnu, yfir í stórbruna sem krefst þátttöku allra stöðva SHS og jafnvel aukamannskaps sem kalla

ður er út af frívakt. Við höfum margþættu hlutverki að gegna við almenning, fyrirtæki og stofnanir á starfssvæðinu sem felst fyrst og fremst í því að veita gæðaþjónustu við fyrstu viðbrögð og forvarnir til að vernda líf, heilsu, umhverfi og eignir borgarbúa.

Góðan daginnSlétt 100 útköll á sjúkrabíla undanfarinn sólarhring og af þeim voru 23 á forgangi.Dælubílar voru boðaðir fj...
20/08/2026

Góðan daginn

Slétt 100 útköll á sjúkrabíla undanfarinn sólarhring og af þeim voru 23 á forgangi.

Dælubílar voru boðaðir fjórum sinnum í útkall, tvö umferðarslys þar sem í öðru þeirra var töluverð vinna við að koma flutningabíl aftur á hjólin eftir að hann valt á hliðina sem og að hreinsa upp eldsneytisleka. Upp úr 23:00 í gærkveldi var útkall á geymslusvæði í Hafnarfirði þar sem eldur hafði kviknað, við tók 3ja tíma vinna þar sem erfitt reyndist að komast að rótum eldsins.

Mynd dagsins er frá eldinum í Hafnarfirði.

Njótið dagsins.

Góðan daginn frá slökkviliðinu 🚒🚑Síðasta sólarhringinn sinntum við  95 sjúkraflutningum, sem er heldur undir meðallagi. ...
19/08/2026

Góðan daginn frá slökkviliðinu 🚒🚑

Síðasta sólarhringinn sinntum við 95 sjúkraflutningum, sem er heldur undir meðallagi. Af þeim voru 25 flutningar á forgangi.

Slökkvibílarnir voru kallaðir út 4 sinnum, en sem betur fer voru það allt minniháttar verkefni.

📸 Myndir dagsins er frá æfingu hjá okkur, þar sem áhöfn dælubíls æfir vatnsöflun og notkun búnaðar bílsins. Á myndinni er sprautað bæði úr handslöngu og vatnsbyssu (monitor) á þaki bílsins. Reglulegar æfingar eru mikilvægur hluti starfsins og tryggja að mannskapur og búnaður séu tilbúin þegar á reynir.

Við óskum ykkur góðs dags – farið varlega og hugið vel að hvert öðru.

Góðan daginn. Sjúkraflutningar síðasta sólarhring fóru í 128stk, eða 46 á forgangi. Rólegt á dælubíla, eða 3 útköll.
18/08/2026

Góðan daginn.
Sjúkraflutningar síðasta sólarhring fóru í 128stk, eða 46 á forgangi. Rólegt á dælubíla, eða 3 útköll.

Laugardags næturvaktinn hefur gengið vel þrátt fyrir smá erill en ekkert sem við erum ekki vön.Dælubílar hafa sinnt 4 ve...
16/08/2026

Laugardags næturvaktinn hefur gengið vel þrátt fyrir smá erill en ekkert sem við erum ekki vön.

Dælubílar hafa sinnt 4 verkefnum síðasta sólahring sem öll voru í smærra lagi og sjúkrabílar 100 og þar af voru 25 forgangsverkefni.

Á góðum sumardögum eru útiæfingar vinnsælar og reynt að hafa þær eins fjölbreytilegar og hægt er, tilgangurinn er alltaf að vera eins vel undirbúin og við getum en stór hluti af starfinu er sí og endurmenntun.

Mynd dagsins er af köfunaræfingum.

Njótið dagsins og farið varlega.

Sólarhringurinn var líflegur hjá okkur hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.Dælubílarnir fóru í 2 útköll, en sjúkrabílar...
14/08/2026

Sólarhringurinn var líflegur hjá okkur hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Dælubílarnir fóru í 2 útköll, en sjúkrabílarnir voru heldur betur á ferðinni með 123 útköll um höfuðborgarsvæðið.

Við viljum þakka öllum sem lögðu sitt af mörkum í dag – starfsfólki, samstarfsaðilum og ekki síst ykkur sem sýnið tillitssemi þegar bláu ljósin blikka. Það skiptir meira máli en margir gera sér grein fyrir.

Við óskum ykkur öllum góðs dags og munum áfram vera til taks – allan sólarhringinn.

Góðan dagSíðastliðinn sólarhringur er búinn að vera töluvert annasamur eins og svo oft áður því miður. 117 útköll á sjúk...
13/08/2026

Góðan dag

Síðastliðinn sólarhringur er búinn að vera töluvert annasamur eins og svo oft áður því miður. 117 útköll á sjúkrabíla og 6 útköll á dælubíla en þar var stærsta verkefnið í Grafarvoginum þar sem hafði kviknað í við trésmíðaverkstæði og var einn starfsmaður fluttur á slysadeild þaðan með sjúkrabíl.

Einnig vorum við eins og fleiri viðbragðsaðilar með auka mannskap tengt almyrkvanum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið.

Mynd dagsins er frá köfurunum okkar við æfingu í vikunni

Njótið dagsins og farið varlega

🌞🌑 Styttist í almyrkvann hjá okkur Á meðan þið njótið sjónarspilsins (með réttum gleraugum, takk fyrir 🕶️☀️) erum við á ...
12/08/2026

🌞🌑 Styttist í almyrkvann hjá okkur

Á meðan þið njótið sjónarspilsins (með réttum gleraugum, takk fyrir 🕶️☀️) erum við á vaktinni eins og alltaf.

Njótið dagsins, verið örugg og munið að horfa aldrei beint í sólina berum augum!

Góðan daginnNóg að gera hér á bæ sl. sólarhring.Sjúkrabílar fengu 117 boðanir og af þeim voru 27 á forgangi.Dælubílar fe...
11/08/2026

Góðan daginn

Nóg að gera hér á bæ sl. sólarhring.

Sjúkrabílar fengu 117 boðanir og af þeim voru 27 á forgangi.

Dælubílar fengu fjórar boðanir, tvær af þeim voru þar sem grunur væri um eld en reyndist ekki vera, ein hreinsun á olíu og svo eitt útkall vegna vatnstjóns.

Mynd dagsins er af æfingu í blíðviðrinu.

Njótið dagsins kæru vinir.

10/08/2026

Góðan dag.

Fallegur dagur framundan hér í höfuðborginni og við á B vakt á heimleið eftir síðustu næturvaktina og erum komin í smá vaktarfrí.

Það voru 84 sjúkraflutningar og dælubílar voru sendir í s*x útköll. þ.á.m voru tveir vegna vatnsleka og tveir vegna umferðarslysa og eitt þar sem tilkynnt var um eld í bíl en sem betur fer var það ekki heldur hafði einhver kveikt í dekki á bílaplani. (sjá mynd).

Njótið dagsins

Góðan dag.Eins og við áttum alveg eins von á, þá var nokkuð mikið að gera og fór næturvaktin í fleiri útköll 53 en dagva...
09/08/2026

Góðan dag.
Eins og við áttum alveg eins von á, þá var nokkuð mikið að gera og fór næturvaktin í fleiri útköll 53 en dagvaktin 49. Það þykir alltaf svolítið sérstakt.

Dælubílar fóru einnig í fimm útköll.

Nú fer næturvaktin heim og hvílir sig en við erum aftur á vakt í kvöld og eftir það erum við á B vaktinni komin í nokkura daga frí.

Á mynd dagsins er verið að laga sjúkrabörur og allir hjálpast að nema einn sem drekkur kaffi.

Góðar stundir

Address

Skógarhlíð 14
Reykjavík
105

Telephone

5283000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.:

Shortcuts

Share

Category