29/07/2026
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er hafin.
Hjá sýslumanninum á Vestfjörðum má greiða atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins virka daga sem hér segir:
• Ísafjörður, Hafnarstræti 1, kl. 9:00-15:00 en föstudaga kl. 09:00-14:00.
• Hólmavík, Hafnarbraut 25, 2.hæð, kl. 09:00-13:00 en föstudaga kl.9:00-12:00.
• Patreksfjörður, Aðalstræti 92, kl. 09:00-12:00 og 13:00-15:00 en föstud. kl. 09:00-12:00.
Þegar nær dregur kjördegi verða settar inn á svæði sýslumanna á vefnum www.island.is, upplýsingar um fleiri kjörstaði, um atkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum og dvalarheimilum í umdæminu og eftir atvikum lengdan tíma sem opið verður á skrifstofum embættisins.
- Kjósandi skal gæta að hvar hann er á kjörskrá, en nálgast má upplýsingar um það á vef Þjóðskrár, www.skra.is.
- Kjósandi skal, áður en hann greiðir atkvæði utan kjörfundar, gera starfsmanni kjörstjóra grein fyrir sér með því að framvísa vegabréfi, ökuskírteini, nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra.
- Öllum sem eru skráðir á kjörskrá er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá hvaða sýslumanni sem er óháð búsetu eða lögheimili.
- Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, þarf að hafa borist hlutaðeigandi skrifstofu sýslumanns á þar til gerðu eyðublaði eigi síðar en kl. 16:00 fjórum dögum fyrir kjördag eða þriðjudaginn 25. ágúst.
Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt.