Saudarkrokur.is

Saudarkrokur.is Bæjar- og uppýsingavefur um Sauðárkrók í Skagafirði.

https://saudarkrokur.is/byggdalistinn-og-sjalfstaedisflokkurinn-mynda-meirihluta-i-skagafirdi-og-magnus-barddal-verdur-s...
29/05/2026

https://saudarkrokur.is/byggdalistinn-og-sjalfstaedisflokkurinn-mynda-meirihluta-i-skagafirdi-og-magnus-barddal-verdur-sveitarstjori/
Byggðalistinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa kynnt málefnasamning sinn fyrir kjörtímabilið 2026–2030 með skýra framtíðarsýn um að efla Skagafjörð sem öflugt og aðlaðandi samfélag fyrir íbúa og atvinnulíf. Í málefnasamningnum er áhersla lögð á öflugt atvinnulíf, uppbyggingu innviða, aukna nýsköpun, bætt aðgengi að húsnæði og þjónustu, heilsueflingu, sterkt skólasamfélag og góða þjónustu við fólk á öllum aldri. Jafnframt er lögð sérstök áhersla á virkt samtal við íbúa, ábyrga fjármálastjórn og markvissa uppbyggingu sem styður við lífsgæði, fjölbreytt tækifæri og áframhaldandi þróun allra byggðakjarna í sveitarfélaginu.

Magnús Barðdal Reynisson mun taka við stöðu sveitarstjóra af Sigfúsi Inga Sigfússyni. Sveinn Þ. Úlfarsson Finster verður forseti sveitarstjórnar fyrstu tvö árin, að þeim tíma liðnum mun Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir taka við forsetakeflinu. Eyþór Fannar Sveinsson verður skipaður formaður byggðarráðs.

Byggðalistinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa kynnt málefnasamning sinn fyrir kjörtímabilið 2026–2030 með skýra framtíðarsýn um að efla Skagafjörð sem öflugt og aðlaðandi samfélag fyrir íbúa og atvin…

https://saudarkrokur.is/undirritun-viljayfirlysingar-um-staekkun-verknamsadstodu-fjolbrautaskola-nordurlands-vestra/Verk...
29/05/2026

https://saudarkrokur.is/undirritun-viljayfirlysingar-um-staekkun-verknamsadstodu-fjolbrautaskola-nordurlands-vestra/
Verknámsaðstaða Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra verður reist í tveimur áföngum og framkvæmdir á fyrri áfanga hefjast næsta vetur. Sveitarfélagið Skagafjörður mun hafa umsjón með framkvæmdum á grundvelli frumathugunar Framkvæmdasýslu ríkisins. Viljayfirlýsing mennta- og barnamálaráðuneytisins, sveitarfélagsins og skólans þess efnis var undirrituð í dag.

Fyrirhugaðri stækkun er ætlað að mæta þörfum allra verknámsdeilda skólans auk þess að rúma fjölnotarými þar sem hægt verði að kenna greinar sem ekki eru kenndar reglulega við skólann eins og plastiðn, bifvélavirkjun og húsgagnasmíði.

Skagafjörður mun hafa umsjón með framkvæmdum og taka þátt í stofnkostnaði ásamt öðrum sveitarfélögum á Norðurlandi vestra, samtals 40% af heildarkostnaði og mun ríkissjóður greiða 60% á móti.

Verknámsaðstaða Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra verður reist í tveimur áföngum og framkvæmdir á fyrri áfanga hefjast næsta vetur. Sveitarfélagið Skagafjörður mun hafa umsjón með framkvæmdum á gr…

22/05/2026
https://saudarkrokur.is/brjostamidstod-landspitalans-er-med-brjostaskimun-i-samstarfi-vid-heilsugaesluna-a-saudarkroki-d...
14/05/2026

https://saudarkrokur.is/brjostamidstod-landspitalans-er-med-brjostaskimun-i-samstarfi-vid-heilsugaesluna-a-saudarkroki-dagana-18-22-mai/ Brjóstamiðstöð Landspítala verður í samstarfi við Heilsugæsluna á ferð um landið vorið 2026 með brjóstaskimun. Lögð er rík áhersla á að konur nýti sér þessa þjónustu, sjá leiðbeiningar um bókun hér að neðan.

Með brjóstaskimun er hægt að greina brjóstakrabbamein á byrjunarstigi og draga þannig verulega úr dánartíðni vegna sjúkdómsins.
Áhersla er lögð á að konur nýti sér þjónustuna sem er að jafnaði í boði á hverjum stað árlega eða á tveggja ára fresti.
Bókun á [email protected] eða í síma 543 9560 kl. 9:00 – 15:30 virka daga.
English

Landspítali’s Breast Care Centre will, in collaboration with the Health Care Centre, tour the country in the spring of 2026, offering breast cancer screenings. Women are encouraged to take advantage of this service, see information on booking appointments below.

Breast cancer screenings can detect breast cancer at an early stage and thus significantly reduce the death rate from the disease.
Women are encouraged to take advantage of the services, which are generally available at each location annually or every two years.
Book an appointment at [email protected] or by phone 543 9560 at 9:00 – 15:30 on weekdays.
Polska

Centrum Leczenia Chorób Piersi Szpitala Krajowego we współpracy z poradniami opieki zdrowotnej będzie objeżdżało po kraju wiosną 2026 roku, prowadząc przesiewowe badania raka piersi. Jest bardzo istotne, by kobiety miały dostęp do tej usługi i korzystały z niej. Informacje dotyczące umawiania wizyt znajdują się poniżej.

Dzięki przesiewowym badaniom piersi można zdiagnozować raka piersi w początkowym stadium i znacząco zmniejszyć liczbę zgonów z powodu tej choroby.
Istotne jest, by kobiety skorzystały z usług, które standardowo dostępne są na miejscu raz w roku lub co dwa lata.
Umawianie wizyt odbywa się pod adresem [email protected] lub pod numerem telefonu 543 9560 w godzinach 9:00 – 15:30 w dni robocze.
Brjóstamiðstöð Landspítala á vefnum/Landspítali’s Breast Care Centre online/ Strona internetowa Centrum Leczenia Chorób Piersi Szpitala Krajowego:

https://saudarkrokur.is/foreldrakynningar-um-netoryggi-og-netofgasamfelog/  Lögreglan á Norðurlandi vestra í samstarfi v...
14/05/2026

https://saudarkrokur.is/foreldrakynningar-um-netoryggi-og-netofgasamfelog/ Lögreglan á Norðurlandi vestra í samstarfi við Netvís býður foreldrum og forráðamönnum á fræðslukynningar um netöryggi barna og ungmenna, áhrif netöfgasamfélaga og hvernig hægt er að þekkja hættumerki í netheimum. Kynningin verður haldin í Árskóla á Sauðárkróki þriðjudaginn 19. maí kl. 16:00.
Fyrirlesarar eru Símon Geir og Haukur sem hafa mikla reynslu á þessu sviði og hafa átt samtöl og unnið með fjölda einstaklinga á öllum aldri um áskoranir og hættur sem leynast á netinu.
Foreldrar fá hagnýta fræðslu, ráð og innsýn í þann veruleika sem börn og ungmenni mæta daglega á netinu.
Við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til að mæta og kynna sér þetta mikilvæga málefni.

https://saudarkrokur.is/nyr-skolastjori-og-deildarstjori-i-varmahlidarskola/ Nína Ýr Nielsen hefur verið ráðin í starf s...
13/05/2026

https://saudarkrokur.is/nyr-skolastjori-og-deildarstjori-i-varmahlidarskola/ Nína Ýr Nielsen hefur verið ráðin í starf skólastjóra Varmahlíðarskóla. Nína hefur margra ára reynslu af störfum innan grunnskóla sem kennari, verkefnastjóri og stjórnandi. Undanfarin ár hefur Nína starfað sem verkefnastjóri fræðslumála hjá Skagafirði þar sem hún hefur komið að stefnumótun, þróun faglegra starfshátta og ráðgjöf af ýmsu tagi. Þá leysti Nína af sem aðstoðarskólastjóri í Varmahlíðarskóla skólaárið 2023-2024. Nína er með B.Ed. og M.Ed. gráðu frá Háskóla Íslands.

Guðrún Helga Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf deildarstjóra í Varmahlíðarskóla. Guðrún hefur fjölbreytta reynslu af kennslu og öðrum störfum innan grunnskóla. Síðustu ár hefur hún sinnt afleysingum og forföllum í Varmahlíðarskóla samhliða bústörfum. Guðrún er með B.Ed. og M.Ed. gráðu frá Háskóla Íslands.

https://saudarkrokur.is/skagafjordur-naer-samkomulagi-vid-islenska-rikid-um-uppbyggingu-a-holum-i-hjaltadal/  Í dag var ...
13/05/2026

https://saudarkrokur.is/skagafjordur-naer-samkomulagi-vid-islenska-rikid-um-uppbyggingu-a-holum-i-hjaltadal/ Í dag var mikilvægt framfararskref stigið fyrir Hóla í Hjaltadal eftir áralangt samtal Skagafjarðar við íslenska ríkið um þéttbýlið á Hólastað. Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar hefur undirritað samkomulag við forsætisráðherra og fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins um að koma innviðum, umhirðu og staðarhaldi svæðisins í það horf sem almennt gildir í þéttbýli innan sveitarfélagsins.

Markmið samkomulagsins er að tryggja að rekstur innviða og þjónusta á Hólum verði í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til annarra þéttbýlisstaða í Skagafirði. Samkvæmt samkomulaginu tekur sveitarfélagið yfir rekstur, viðhald og uppbyggingu allra helstu innviða innan afmarkaðs þéttbýlissvæðis á Hólum, þar á meðal veitukerfa, gatna, lóða og annarrar almennrar umhirðu. Áhersla er lögð á úrbætur í fráveitumálum, en fyrir liggur að ráðast þarf í umfangsmiklar endurbætur á núverandi kerfi. Skagafjörður skuldbindur sig til að hefja þær framkvæmdir innan eins árs frá undirritun samkomulagsins og ljúka þeim innan fimm ára.

Jafnframt felur samkomulagið í sér að ríkissjóður afsalar til sveitarfélagsins eignarhaldi á afmörkuðu svæði sem nær til stærsta hluta þéttbýlisins á Hólum, ásamt landi sem ætlað er til frekari þróunar íbúðabyggðar. Með þessu skapast aukin tækifæri til uppbyggingar og þróunar byggðar á svæðinu.

Samkvæmt samkomulaginu leggur ríkissjóður Skagafirði til fyrrgreinda landspildu í þéttbýlinu á Hólum auk 150 milljóna króna eingreiðslu. Því til viðbótar fær Skagafjörður til eignar 26 hektara landspildu við Nýrækt í Fljótum sem sveitarfélagið hyggst nýta til íbúðauppbyggingar. Undanskildur er sá hluti lands sem fer undir breytta legu Siglufjarðarvegar vegna fyrirhugaðra Fljótaganga.

Samkomulagið markar tímamót í uppbyggingu Hóla og styrkir grundvöll fyrir áframhaldandi þróun svæðisins sem öflugs og lifandi samfélags innan Skagafjarðar.

https://saudarkrokur.is/traustur-rekstur-og-jakvaed-afkoma-hja-skagafirdi-arid-2025/ Ársreikningur sveitarfélagsins Skag...
30/04/2026

https://saudarkrokur.is/traustur-rekstur-og-jakvaed-afkoma-hja-skagafirdi-arid-2025/ Ársreikningur sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2025 sýnir sterka rekstrarniðurstöðu, trausta efnahagsstöðu og ábyrga fjármálastjórn. Rekstur sveitarfélagsins skilaði jákvæðri niðurstöðu, eigið fé jókst milli ára og skuldastaða er vel innan þeirra marka sem lög gera ráð fyrir.

Ársreikningurinn var lagður fram til seinni umræðu þann 22. apríl sl. og nær yfir bæði A-hluta sveitarsjóðs og samantekinn A- og B-hluta. Í A-hluta eru aðalsjóður, eignasjóður og þjónustustöð, en í B-hluta eru meðal annars veitustofnanir, hafnarsjóður, félagslegar íbúðir og félög í eigu sveitarfélagsins, auk hlutdeildarfélaga samkvæmt hlutfallslegri ábyrgð.

Ársreikningur sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2025 sýnir sterka rekstrarniðurstöðu, trausta efnahagsstöðu og ábyrga fjármálastjórn. Rekstur sveitarfélagsins skilaði jákvæðri niðurstöðu, ei…

Address

Sauðárkrókur
550

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Saudarkrokur.is posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Saudarkrokur.is:

Share