Lögreglan á Norðurlandi vestra

Lögreglan á Norðurlandi vestra Sauðárkrókur s. 444-0700
Hvammstangi s. 444-0728
Blönduós s. 444-0720

03/08/2026

🚨 Tvö umferðarslys milli Blönduóss og Hrútafjarðar 🚨

Miklar tafir eru nú á umferð um þjóðveg 1 vegna tveggja umferðarslysa sem urðu með stuttu millibili, annars vegar í nágrenni við Þrístapa og hins vegar á Hrútafjarðarhálsi.

Í öðru slysinu valt bifreið en þar var um tvær bifreiðar að ræða en í hinu rákust tvær bifreiðar saman. Tildrög slysanna liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Við biðjum vegfarendur um að sýna fyllstu biðlund, virða fyrirmæli viðbragðsaðila og forðast allan glæfraakstur. Unnið er að því að greiða úr umferð og hleypa henni af stað eins fljótt og auðið er.

🚔 Við þökkum fyrir þolinmæði og samstarf á meðan aðgerðir standa yfir.

☀️ Helgin fór vel fram þrátt fyrir mikinn fjölda gesta á Norðurlandi vestra. Með Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki og...
03/08/2026

☀️ Helgin fór vel fram þrátt fyrir mikinn fjölda gesta á Norðurlandi vestra. Með Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki og Norðanpaunki á Laugarbakka má ætla að íbúafjöldi á svæðinu hafi nær tvöfaldast.

👏 Við viljum þakka öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til að helgin gengi vel.

🚔 Nokkuð var um hraðakstur um helgina og því má búast við áfram öflugu eftirliti lögreglu með hraða og ástandi ökumanna á næstu dögum.

🚗☀️ Veðrið er með besta móti og margir á leið heim eftir annasama og skemmtilega helgi. Við hvetjum ökumenn til að gefa sér góðan tíma á leiðinni, fara sér hægt, taka reglulega pásu til að teygja úr sér og gæta þess að þreyta eftir skemmtanahöld hafi ekki áhrif á aksturinn.

💙 Komum öll heil heim.

Meðfylgjandi mynd er frá grillveislu Húnabyggðar á Húnavöku um miðjan júní.

⚡️Lögreglan á Norðurlandi vestra nýtur þess í sumar að fá öflugan liðsauka að sunnan.🚔 0814 starfar alla jafna sem ranns...
31/07/2026

⚡️Lögreglan á Norðurlandi vestra nýtur þess í sumar að fá öflugan liðsauka að sunnan.

🚔 0814 starfar alla jafna sem rannsóknarlögreglumaður hjá Lögreglunni á Suðurlandi en sinnir í sumar almennri löggæslu hér í umdæminu.

👩‍⚖️ Sólveig er aðstoðarsaksóknari og staðgengill lögreglustjóra hjá okkur um þessar mundir. Alla jafna starfar hún sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Suðurlands.

🏅Á myndinni má sjá hjónin við störf á Unglingalandsmótinu – 0814 við almenna löggæslu og Sólveigu við dómgæslu á handboltavelli.

Við kunnum þeim kærar þakkir fyrir framlagið og óskum þeim áfram góðs gengis í sumarstörfunum.

Um helgina verður Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Sauðárkróki.  Þátttakendur eru hvattir til þess að kynna sér meðfylgjan...
31/07/2026

Um helgina verður Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Sauðárkróki. Þátttakendur eru hvattir til þess að kynna sér meðfylgjandi kort hvar upplýsingar eru um helstu bifreiðastæði. Að því sögðu eru mótsgestir og þátttakendur jafnframt hvattir til þess að skilja bifreiðar sínar eftir ef hægt er og ganga til mótssvæðis.

30/07/2026

🫡Virðing, hvatning og góð framkoma smita út frá sér.

🏆Verum góðar fyrirmyndir og skemmtum okkur vel á Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki núna um helgina

☎️Við verðum á svæðinu en minnum á símanúmer Neyðarlínu 112 sé þörf á aðstoð lögreglu

30/07/2026

🚔 Verslunarmannahelgin er fram undan!

Lögreglan á Norðurlandi vestra verður á ferðinni um allt umdæmið um helgina, til aðstoðar ef á þarf að halda og með öflugt umferðareftirlit til að stuðla að öryggi allra vegfarenda.

Við hvetjum alla til að aka af yfirvegun, sýna tillitssemi og muna að áfengi og akstur aldrei fara saman.

Njótum helgarinnar saman – komum öll heil heim. 💙

24/07/2026

112 er neyðarnúmerið á Íslandi. Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við það beint eru til nokkrar aðrar leiðir til að fá hjálp.

Hringja í síma 5990112. Vistaðu þetta númer á símanum þínum. Athugaðu að staðsetningarupplýsingar fylgja ekki með þegar hringt er í þetta númer.

112 Iceland appið eða netspjallið á 112.is gefa beint samband við neyðarvörð í gegnum nettengingu. Þessar leiðir koma staðsetningarupplýsingum til skila til neyðarvarða og þú getur sent myndir.

Þú getur hjálpað okkur með því að láta öll vita.

Nánari upplýsingar: https://www.112.is/mikilvaegar-upplysingar-vardandi-simtol-i-112

------------------------------------

112 is the main emergency number in Iceland. If you experience difficulty reaching that number there are a few alternatives to get help in an emergency:

You can make emergency calls directly through +35459901112. Save this number on your phone. Please note that location information is not transmitted if you use this number.

112 Iceland app and online chat. You can reach emergency services via text messaging through a data connection. Location information will be transmitted with your messages and you can also send photos. The app can be found in your app stores or you can bookmark this link on your phone: https://www.112.is/en/chat

You can help us by spreading the message.

https://www.112.is/en/important-information-regarding-calls-to-112

📍 Eldur í Húnaþingi – helgin er fram undanUm helgina nær Eldur í Húnaþingi hámarki og búast má við mikilli umferð og fjö...
24/07/2026

📍 Eldur í Húnaþingi – helgin er fram undan

Um helgina nær Eldur í Húnaþingi hámarki og búast má við mikilli umferð og fjölmenni víða um Húnaþing vestra.

Foreldrar og forsjáraðilar gegna lykilhlutverki í öryggi barna og ungmenna. Taktu spjallið áður en haldið er af stað og ræddu við ungmennið þitt um:

✅ Hvert það ætlar.
✅ Með hverjum það verður.
✅ Hvenær það hyggst koma heim.
✅ Hvernig það ætlar að komast á milli staða.

Að vita hvert planið er skiptir máli. Samvera, samtal og skýr mörk eru meðal bestu forvarna sem við eigum.

Við hvetjum alla til að sýna hvert öðru tillitssemi, fara varlega í umferðinni og njóta hátíðarinnar á ábyrgan hátt.

Lögreglan á Norðurlandi vestra verður á vettvangi alla helgina og er ávallt til staðar ef aðstoðar er þörf.

17/07/2026

Address

Sudurgata 1
Sauðárkrókur
550

Telephone

4440700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lögreglan á Norðurlandi vestra posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Lögreglan á Norðurlandi vestra:

Share

Category