Sveitarfélagið Árborg

Sveitarfélagið Árborg Í febrúar 1998 sameinuðust Eyrarbakkahreppur, Stokkseyrarhreppur, Sandvíkurhreppur og Selfosskaupstaður í eitt sveitarfélag, Sveitarfélagið Árborg.

Vegagerðin | MalbiksviðgerðirÞriðjudaginn 18. ágúst og miðvikudaginn 19. ágúst er stefnt á að sinna malbiksviðgerðum á S...
17/08/2026

Vegagerðin | Malbiksviðgerðir

Þriðjudaginn 18. ágúst og miðvikudaginn 19. ágúst er stefnt á að sinna malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi frá Landvegamótum að Selfossi. Einhverjar tafir geta orðið á umferð á meðan framkvæmdum stendur.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 til kl. 04:00 hvorn dag.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Menningarmánuðurinn október 2026Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sextánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg...
17/08/2026

Menningarmánuðurinn október 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sextánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Vinna er hafin við að fylla október af áhugaverðum viðburðum og hvetjum við áhugasama, sem standa að viðburðum í októbermánuði, að tengjast hátíðinni og bjóða þar með íbúum upp á enn meiri fjölbreytni.

Hægt er að senda upplýsingar á Heru Fjölnisdóttur | [email protected] eða Margréti Blöndal | [email protected]. Einnig er hægt að hringja í síma 480 1900 til að fá nánari upplýsingar.

Með von um góðar viðtökur,

Sveitarfélagið Árborg

Skemmtileg smiðja, frítt að taka þátt, núna á fimmtudag hjá Byggðasafn Árnesinga - Árnessýsla Heritage Museum 💚🌱
17/08/2026

Skemmtileg smiðja, frítt að taka þátt, núna á fimmtudag hjá Byggðasafn Árnesinga - Árnessýsla Heritage Museum 💚🌱

Undirbúningur fyrir malbiksviðgerðir | Þjónustumiðstöð ÁrborgarÍ dag og á næstu dögum undirbúa starfsmenn Þjónustumiðstö...
14/08/2026

Undirbúningur fyrir malbiksviðgerðir | Þjónustumiðstöð Árborgar

Í dag og á næstu dögum undirbúa starfsmenn Þjónustumiðstöðvar malbiksviðgerðir og biðja þeir fólk um að fara varlega á tilteknum svæðum, þar sem mikið er um hvassar brúnir. Svæðin sem um ræðir eru þessi:

Hagalækur og Móavegur
Árvegur vestan við Krónuna og að Hörðuvöllum
Á þriðjudag / miðvikudag er stefnt á að fræsa Árveginn frá Hörðuvöllum að Heiðmörk

Með kveðju,
Þjónustumiðstöð Árborgar

Svartur  köttur fangaður á Selfossi 13. ágúst 2026. Dýrið er án ólar og er ekki örmerkt, það verður í vörslu Dýraeftirli...
13/08/2026

Svartur köttur fangaður á Selfossi 13. ágúst 2026.

Dýrið er án ólar og er ekki örmerkt, það verður í vörslu Dýraeftirlits Árborgar þar til eigandi finnst.

Hægt er að hafa samband við dýraeftirlitsmann í síma 830 9941 á milli kl. 08:00-16:30.

Með kveðju,
Dýraeftirlit Árborgar

Áttu barn sem er orðið 12 mánaða?Þú gætir átt rétt á heimgreiðslum frá Árborg ef barnið er ekki í leikskóla eða hjá dagf...
12/08/2026

Áttu barn sem er orðið 12 mánaða?

Þú gætir átt rétt á heimgreiðslum frá Árborg ef barnið er ekki í leikskóla eða hjá dagforeldri.

Bæði nýjar umsóknir og endurnýjun umsókna þurfa að berast fyrir 20. ágúst til að greiðslur geti átt sér stað í byrjun september.

Heimgreiðslur eru greiddar í 11 mánuði á ári og eru ekki greiddar fyrir júlí. Umsóknir sem berast eftir 20. ágúst taka gildi frá næsta greiðslumánuði. Heimgreiðslur eru ekki greiddar eftirá.

Hlekk á frekari upplýsingar um umsóknarferlið má finna í fyrstu athugasemd.

Skólasetning skólaárið 2026-2027Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir mánudaginn 24. ágúst 2026.Skólaakstur...
12/08/2026

Skólasetning skólaárið 2026-2027

Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir mánudaginn 24. ágúst 2026.

Skólaakstur þennan dag verður auglýstur á heimasíðum skólanna.

Allar tímasetningar og upplýsingar um skólasetningar er að finna í frétt á arborg.is og í hlekk við fyrstu athugasemd þessarar færslu.

Skólastjórnendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, Stekkjaskóla, Sunnulækjarskóla og Vallaskóla.

Verðkönnun fyrir Sveitarfélagið ÁrborgSveitarfélagið Árborg óskar eftir verðtilboði í eftirfarandi ráðgjafaverkefni á ve...
12/08/2026

Verðkönnun fyrir Sveitarfélagið Árborg

Sveitarfélagið Árborg óskar eftir verðtilboði í eftirfarandi ráðgjafaverkefni á vegum sveitarfélagsins: Rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar

Tilboði í verðkönnun skal skila í tölvupósti á [email protected] fyrir kl. 12:00, mánudaginn 24. ágúst 2026.

Nánar er greint frá tilboðsskilum í lýsingu en tilboð í heild sinni má finna undir "Auglýsingar og tilkynningar" á arborg.is en hlekk má einnig finna í fyrstu athugasemd við þessa frétt.

LEIÐRÉTTING | Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi 12. -13. ágústVegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka...
11/08/2026

LEIÐRÉTTING | Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi 12. -13. ágúst
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:

Miðvikudagskvöld 12. ágúst og fimmtudagskvöld 13. ágúst er stefnt á malbikun á Suðurlandsvegi austan við Selfoss.

Annari akreininni er lokað sitthvort kvöldið á um 1,3 km kafla við Bitru.

Hliðavegir lokast tímabundið á meðan farið er framhjá.

Umferð verður stýrt framhjá framkvæmdasvæðinu og merkingar settar upp skv. viðhengdri merkingaráætlun 8.0.86.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 bæði kvöldin.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi 10. -11. ágústVið minnum á áframhaldandi framkvæmdir á Suðurlandsvegi austan við ...
10/08/2026

Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi 10. -11. ágúst

Við minnum á áframhaldandi framkvæmdir á Suðurlandsvegi austan við Selfoss á morgun 11. ágúst.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 08:00 til kl. 20:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Address

Austurvegi 2
Selfoss
800

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sveitarfélagið Árborg posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share