14/05/2026
Sigurjón með neglu 💪
Rödd unga fólksins með gríðarlegan metnað fyrir okkar góða sveitarfélagi!
ÞEIR SKORA SEM ÞORA
Nú styttist í sveitarstjórnarkosningar. Ég fæ að kjósa í fyrsta sinn og hlakka til að mæta á kjörstað.
Ég hef búið í Flóanum frá fæðingu, og nú þegar uppvaxtarárin eru að baki og fullorðinsárin framundan er virkilega skemmtilegt að líta í baksýnisspegilinn og sjá hvað við erum heppin sem höfum alist upp hér í Flóahreppi.
Flóaskóli - okkar stolt
Flóaskóli er eitthvað sem við getum öll verið stolt af. Þegar ég var í 10. bekk hugsaði ég mikið um hvað það yrði spennandi að fara í fjölbrautaskólann á Selfossi, en þegar þangað var komið var andinn aldrei alveg sá sami og í Flóaskóla. Margir fyrrverandi nemendur skólans geta eflaust tekið undir að þeir sakni hans að einhverju leyti. Þetta birtist t.a.m. í því að þónokkrir af mínum gömlu samnemendum starfa þar í dag og enn fleiri hafa komið þar við á starfsferli sínum.
Ungmennafélagið Þjótandi - sterkt og öflugt
Ungmennafélagið Þjótandi er annað sem við getum verið sérstaklega stolt af. Félagið heldur eða tekur virkan þátt í fjölmörgum viðburðum í sveitarfélaginu og býður upp á íþróttaæfingar fyrir börn 7 ára og eldri, bæði sumar og vetur. Nýverið byrjaði félagið með íþróttaskóla fyrir leikskólabörn og einnig voru settar af stað æfingar fyrir fullorðna, 18 ára og eldri, í nýja salnum í Þingborg. Það að hafa svona sterkt ungmennafélag er ómetanlegt. Börn og ungmenni fá fjölmörg tækifæri til að hittast og rækta vinasambönd og stuðla að heilbrigðum lífsstíl í leiðinni. Núverandi sveitarstjórn bætti í samstarfssamninginn til Þjótanda á núverandi kjörtímabili og ég hvet næstu sveitastjórn til að halda áfram á sömu braut.
Byggjum á sterkum stoðum
Á næstu árum er mikilvægt að passa upp á okkar sterkustu stoðir. Framundan er fólksfjölgun og þá er mikilvægt að hafa innviði til staðar. Núverandi sveitarstjórn hefur staðið sig vel í þessum efnum og stækkun á Flóaskóla hefst og lýkur á kjörtímabilinu og skipulagsvinna fyrir stækkun á Krakkaborg er einnig hafin.
Samgöngur
Fyrir ungan kjósanda eins og mig, sem nýtir ekki mikla þjónustu sveitarfélagsins – enda barnlaus og enn í foreldrahúsum – skipta samgöngur miklu máli. Ég, líkt og margir aðrir, sæki nám, vinnu og hluta af íþróttaiðkun minni á Selfoss. Þar sem uppbygging og viðhald vega er á ábyrgð Vegagerðarinnar er svigrúm sveitarfélagsins til beinna aðgerða takmarkað. Því er mikilvægt að leggja áherslu á góð samskipti og samstarf við Vegagerðina. Góðar fréttir bárust nýlega um að Önundarholtsvegur verði byggður upp og klæddur, með verklokum síðsumars. Það verður algjör bylting fyrir samgöngur í Flóahreppi og vonandi er þetta bara byrjunin á uppbyggingu tengivega í hreppnum.
Það hefur verið mjög skemmtilegt og upplýsandi að fá að taka þátt í málefnavinnu Framfaralistans og ég hlakka til að vinna áfram að sem flestum verkefnum innan sveitarfélagsins. Ég vil að lokum hvetja allt unga fólkið í hreppnum til að mæta vel á kjörstað því við ættum öll að láta okkur kosningarnar varða og taka þannig þátt í því góða samfélagi sem hefur alið okkur upp. Þeir skora sem þora.
Sigurjón Reynisson
Skipar 8. sæti á Framfaralistanum í Flóahreppi