Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Heilbrigðisstofnun Suðurlands HSU starfrækir níu heilsugæslur á tíu starfsstöðvum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga.

Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Húsnæðisbreytingar á bráðamóttökunni.Húsnæðisbreytingar eru hafnar á ný á bráðamóttökunni á Selfossi sem snýr að aðkomu ...
18/08/2026

Húsnæðisbreytingar á bráðamóttökunni.

Húsnæðisbreytingar eru hafnar á ný á bráðamóttökunni á Selfossi sem snýr að aðkomu sjúkraflutninga. Þetta er síðasti áfangi í breytingunum inn á bráðamóttökunni og áætlaður verktími eru s*x vikur.

Við viljum fyrirfram þakka fyrir þolinmæði á meðan framkvæmdir standa yfir.

Hér má sjá myndir sem teknar voru í dag þriðjudaginn 18. ágúst í blíðskaparveðri.

HSU og Fjarlækningar hefja samstarf um nýja stafræna læknisþjónustu í Vestmannaeyjum.„Eitt af okkar lykilhlutverkum er a...
13/08/2026

HSU og Fjarlækningar hefja samstarf um nýja stafræna læknisþjónustu í Vestmannaeyjum.

„Eitt af okkar lykilhlutverkum er að tryggja sem jafnast aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Það er því sérstaklega ánægjulegt að hefja þetta verkefni í Vestmannaeyjum.

Við bindum vonir við að það reynist verðmætt fyrir skjólstæðinga okkar þar og veiti okkur mikilvæga innsýn í hvernig við getum áfram þróað og styrkt þjónustu HSU til framtíðar.

HSU hefur ávallt lagt áherslu á að skapa starfsfólki svigrúm til nýsköpunar og þróunar og þetta samstarf við Fjarlækningar er gott dæmi um slíka nálgun,“ segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU.

https://island.is/s/hsu/frett/hsu-og-fjarlaekningar-hefja-samstarf-um-nyja-stafraena-laeknisthjonustu

Emily býr í Danmörku og amma hennar er á Móbergi.Ömmustelpan hleypur hálft maraþon fyrir hjúkrunarheimilið Móberg á Self...
12/08/2026

Emily býr í Danmörku og amma hennar er á Móbergi.

Ömmustelpan hleypur hálft maraþon fyrir hjúkrunarheimilið Móberg á Selfossi í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka þann 22. ágúst!

Takk fyrir þitt hugulsama framlag Emily og megir þú ná öllum þínum markmiðum í hlaupinu. Við hvetjum öll til að heita á þessa harðduglegu stelpu hér fyrir neðan.

Hleypur fyrir HSU v/ Móbergs

HJARTAÐ Í HSU // SUMARIÐ 2026 - FRÉTTAPÓSTUR„Hjartað í HSU" er komið út, en þetta er 6. tölublaðið af fréttapósti Heilbr...
10/08/2026

HJARTAÐ Í HSU // SUMARIÐ 2026 - FRÉTTAPÓSTUR
„Hjartað í HSU" er komið út, en þetta er 6. tölublaðið af fréttapósti Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Þessi sumarútgáfa er safnútgáfa tíðinda HSU í maí, júní og júlí 2026, sem við höfum birt á vef og samfélagsmiðlum okkar. Einnig er alltaf eitthvað um nýtt efni, sem ratar á aðra miðla HSU.

👉 Smelltu á myndirnar hér til að skoða Hjartað. Jafnframt er hlekkur á blaðið í heild sinni á vef HSU (PDF) hérna fyrir neðan í fyrstu athugasemd (comment). 👇

/////

Í pistli Díönu Óskarsdóttur, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, í þessari sumarútgáfu Hjartans í HSU segir meðal annars:

,,Sumarið er tími þar sem mörg okkar staldra við, líta yfir farinn veg og undirbúa næstu skref. Þrátt fyrir að flest fólk njóti verðskuldaðs sumarleyfis heldur heilbrigðisþjónustan áfram allan sólarhringinn, alla daga ársins. Það er eitt af því sem gerir starf heilbrigðisstofnana svo sérstakt. Á bak við hverja opna heilsugæslustöð, hverja heimsókn á bráðamóttöku, hverja vakt á legudeild, hvert sjúkrabílaútkall og hverja vitjun í heimahjúkrun stendur öflugt teymi starfsfólks sem leggur metnað sinn í að veita örugga og góða þjónustu.

Tilkomumiklar starfsemistölur
Núna á vormánuðum 2026 birtum við ársskýrslu HSU fyrir árið 2025. Skýrslan sýnir glögglega hversu víðtæk og fjölbreytt starfsemin er. Svo nokkrar starfsemistölur séu tíndar til, þá fæddust til dæmis 57 börn á HSU á síðasta ári sem tengdust 3.800 komum í mæðravernd, framkvæmdar voru 16.468 myndgreiningarrannsóknir og 1.114 einstaklingar voru lagðir inn á sjúkradeildir okkar. Þá voru rúmlega 4.100 samskipti við krabbameinslækna og yfir 1.600 viðtöl hjá sálfræðingum.

Mannlegi þátturinn skilgreinir okkur
Þessar tölur skipta máli, en þær segja vitaskuld aðeins hluta sögunnar. Á bak við hverja þeirra er mikilvægur skjólstæðingur sem þurfti á aðstoð að halda og þrautþjálfað og vel menntað starfsfólk sem lagði sig allt fram um að mæta viðkomandi af fagmennsku, hlýju og virðingu. Það er einmitt þessi mannlegi þáttur sem skilgreinir starf HSU eins og annarra heilbrigðisstofnana og hann verður aldrei mældur í töflum eða gröfum. Við greindum þó á vormánuðum frá þeim niðurstöðum þjónustukönnunar hins opinbera, að HSU er meðal þeirra stofnana sem hafa sýnt mestar framfarir milli ára og taldist því til „hástökkvara ársins“.

Ný stefna með áherslu á þjónustu
Á árinu var áfram unnið af krafti eftir nýrri stefnu HSU til ársins 2030 þar sem áhersla er lögð á framsækna þjónustu, öflugan og eftirsóknarverðan vinnustað, sterka gæða- og öryggismenningu og ábyrgan rekstur. Sú stefna birtist ekki aðeins í markmiðum á blaði heldur í daglegu starfi starfsfólks okkar, í ákvörðunum sem teknar eru nærri vettvangi og í þeim fjölmörgu verkefnum sem ráðist hefur verið í á árinu.

Heilbrigðisþjónusta stendur frammi fyrir sífelldum breytingum. Íbúum fjölgar, samfélagið þróast og væntingar til þjónustunnar aukast. Um leið skapast ný tækifæri til að bæta þjónustuna og upplifun fólks af HSU með auknu samstarfi, nýrri þekkingu og skynsamlegri nýtingu nýjustu tækni.

Dýrmæt verkfæri í tækninýjungum
Á síðustu mánuðum höfum við stigið mikilvæg tækniskref. Gervigreind er nú farin að styðja við myndgreiningu og getur hjálpað heilbrigðisstarfsfólki að greina ákveðin bráðatilvik hraðar. Á hjúkrunarheimilinu Móbergi hefur einnig verið tekin í notkun Teton-lausn sem styður við umönnun íbúa og eykur öryggi þeirra. Slík þróun snýst ekki um að tæknin taki við af fólki heldur að hún verði öflugt stoðtæki og dýrmætt verkfæri sem gefur starfsfólki meira svigrúm til þess sem skiptir mestu máli: að sinna mannlegum samskiptum með nærveru og vandaðri umönnun.

Samstarf er rauði þráðurinn
Samstarf hefur einnig verið áberandi sem rauður þráður í starfsemi HSU síðustu mánuði. Hópslysaæfing sem haldin var í vor minnti okkur á mikilvægi þess að heilbrigðisstarfsfólk, lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar æfi reglulega saman. Þegar raunveruleg áföll verða er enginn tími til að kynnast. Þá þarf samvinna, traust og verklag þegar að vera til staðar. Sama á við um áframhaldandi þróun bráðaviðbragðs í Öræfum þar sem kraftmikið og gefandi samstarf við heimafólk og aðra viðbragðsaðila styrkir öryggi íbúa og þá fjölmörgu ferðamenn sem heimsækja svæðið ár hvert.

Þverfagleg samvinna
Við höfum jafnframt haldið áfram að þróa þjónustu sem byggir á þverfaglegu samstarfi. Verkefnið Kraftmiklir krakkar er gott dæmi um það. Þar vinna ólíkir faghópar saman að því að styðja börn og fjölskyldur á heildstæðan hátt og auðvelda þeim að finna þá þjónustu sem þau þurfa. Slík verkefni minna okkur á að nýsköpun snýst ekki aðeins um tækni heldur einnig um nýjar leiðir til samstarfs í þágu fólksins sem við þjónustum.

Fjölbreytt starfsemi
Þegar ég heimsæki starfsstöðvar okkar, sem spanna allt Suðurland og dágóðan hluta Austurlands, er ég reglulega minnt á hversu ótrúlega fjölbreytt starfsemin er. Á einum stað er tekið á móti nýju lífi, á öðrum sinnt alvarlegum veikindum eða slysum og annars staðar tryggð umönnun og öryggi í daglegu lífi fólks. Verkefnin eru ólík en eiga það sameiginlegt að þar ræður för fagmennska, metnaður og einlægur vilji til að inna gott starf af hendi.

Þakkir til starfsfólks og íbúa
Mig langar að nota þetta tækifæri til að þakka öllu starfsfólki HSU fyrir framlag þess. Sumarmánuðirnir geta verið krefjandi. Ferðamönnum fjölgar, álag breytist og margt starfsfólk er í sumarleyfi, en þjónustan þarf eftir sem áður að ganga hnökralaust fyrir sig. Það tekst vegna þess að fólkið okkar sýnir dag eftir dag ábyrgð, framúrskarandi fagmennsku og mikinn sveigjanleika andspænis kröfuhörðum aðstæðum. Ég vil einnig á sama tíma þakka íbúum umdæmis HSU, sveitarfélögum og öllum samstarfsaðilum fyrir gott samstarf. Heilbrigðisþjónusta verður aldrei sterkari en tengslin sem hún á við samfélagið sem hún þjónar.

Byggt á sterkum grunni
Í þessu tölublaði af Hjartanu í HSU lítum við yfir helstu tíðindi síðustu mánaða og þau fjölmörgu verkefni sem einkenna starfsemi okkar. Við höldum áfram inn í síðari hluta ársins með skýra sýn og metnað til að efla þjónustuna við íbúa umdæmisins. Markmiðið er óbreytt: að íbúar geti ávallt treyst HSU þegar á reynir. Það traust er verðmætasta eign okkar."

Starfsfólk HSU í Vestmannaeyjum stóð vaktina yfir Þjóðhátíð sem fyrr og tryggði öryggi gesta og íbúa með auknum viðbúnað...
05/08/2026

Starfsfólk HSU í Vestmannaeyjum stóð vaktina yfir Þjóðhátíð sem fyrr og tryggði öryggi gesta og íbúa með auknum viðbúnaði, öflugri mönnun og góðu samstarfi við viðbragðsaðila.

Um helgina komu um 95 einstaklingar á heilsugæsluna og 52 leituðu í sjúkraskýlið. Þar tókst að sinna langflestum sem þangað komu og aðeins örfáir þurftu að fara áfram á heilsugæsluna yfir nóttina.

Á hverjum degi fór fram stöðufundur með fulltrúum heilsugæslu, sjúkradeildar, lögreglu, sjúkraflutninga, ÍBV, gæslu og sálgæsluteymis. Þar var farið yfir stöðu mála, lærdóm liðins sólarhrings og það sem mætti bæta til að tryggja sem best öryggi og þjónustu.

Þórunn Pálsdóttir er hjúkrunarfræðingur í Vestmannaeyjum. Hún var ein af þeim sem undirbjó og hélt utan um starfsemina á heilsugæslunni um helgina.

„Það er alltaf sérstök stemning sem fylgir því að vinna á Þjóðhátíð. Flestir eru í góðu skapi og allir leggja sig fram um að gera sitt besta. Við sem erum að vinna erum jafnframt mörg að undirbúa hátíðina með okkar fjölskyldum og mörg sinna einnig öðrum verkefnum fyrir ÍBV yfir helgina. Þegar helgin er að baki eru því flestir orðnir þreyttir, en jafnframt stoltir af góðu samstarfi og vel unnu verki“.

Við viljum þakka öllu starfsfólki, samstarfsaðilum og viðbragðsaðilum fyrir sitt ómetanlegt framlag til Þjóðhátíðar 2026. Sjáumst í Dalnum að ári!

Þau troða kannski ekki upp á stóra sviðinu í Herjólfsdal en eru stjörnur helgarinnar í okkar augum og algjörlega ómissan...
02/08/2026

Þau troða kannski ekki upp á stóra sviðinu í Herjólfsdal en eru stjörnur helgarinnar í okkar augum og algjörlega ómissandi hluti af Þjóðhátíð! 💙

Flúðir um Versló!Traust starfsfólk HSU er alltaf á vaktinni. Eigið góða helgi og farið varlega 💙
01/08/2026

Flúðir um Versló!

Traust starfsfólk HSU er alltaf á vaktinni.
Eigið góða helgi og farið varlega 💙

Þjóðhátíð er hafin og við erum tilbúin!Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum verður á vaktinni allan sólarhring...
31/07/2026

Þjóðhátíð er hafin og við erum tilbúin!

Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum verður á vaktinni allan sólarhringinn yfir Þjóðhátíð.

Starfsfólk okkar verður vel merkt alla helgina á eyjunni og sjúkraflutningar með öflugan viðbúnað. Bráðamóttaka verður opin á heilsugæslunni á sjúkrahúsinu allan sólarhringinn og þá verða hjúkrunarfræðingar með viðveru í Herjólfsdal í sjúkraskýlinu frá kl 20-8 að morgni.

Njótið Þjóðhátíðarinnar, passið vel upp á ykkur og hvert annað – við sjáum um hitt

,,Þetta er mikil viðurkenning á okkar mikilvæga starfi og kemur þetta framlag til með að efla það enn frekar með tækja o...
17/07/2026

,,Þetta er mikil viðurkenning á okkar mikilvæga starfi og kemur þetta framlag til með að efla það enn frekar með tækja og búnaðarkaupum. Fyrir hönd heimahjúkrunar segjum við STÓRT TAKK.”

6.732.729 krónur söfnuðust í styrktarleik milli karlaliða Selfoss og Árborgar í 16-liða úrslitum í Gatorade-bikarnum í fótbolta í síðustu viku. Þeir Aron Fannar Birgisson, leikmaður Selfoss og Þorsteinn Daníel Þorsteinsson, leikmaður Árborgar, færðu heimahjúkrun HSU á Selfo...

Fósturgreiningardeild á Selfossi tók í notkun nýtt sónartæki, líkt og eru í noktun á Landspítala. Með nýja tækinu framkv...
22/06/2026

Fósturgreiningardeild á Selfossi tók í notkun nýtt sónartæki, líkt og eru í noktun á Landspítala.

Með nýja tækinu framkvæmum við áfram 12 vikna sónarskoðanir, 20 vikna sónarskoðanir og vaxtarsónar, en bætt myndgæði gera skoðanir enn nákvæmari fyrir bæði verðandi foreldra og starfsfólk.

Í dag er samþætt líkindamat (hnakkaþykktarmæling) áfram framkvæmt á Landspítala. Í náinni framtíð verður hins vegar farið að bjóða upp á NIPT-próf í staðinn, sem opnar jafnframt möguleika á að veita þá þjónustu hér á Selfossi.

Við fögnum þessari mikilvægu uppfærslu á búnaði og þjónustu fyrir þungaðar konur á Suðurlandi.

Address

Við Árveg
Selfoss
800

Telephone

+3544322000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heilbrigðisstofnun Suðurlands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share