Áfram Árborg

Áfram Árborg Áfram Árborg
Framtíðin er núna

"En við vinnum öll hörðum höndum að því að þetta sveitarfélag í miklum vaxtaverkjum, nái að koma sér réttu megin við str...
22/08/2023

"En við vinnum öll hörðum höndum að því að þetta sveitarfélag í miklum vaxtaverkjum, nái að koma sér réttu megin við strikið. Við snúum við hverjum steini og vílum það ekkert fyrir okkur. Til þess erum við kjörin. En við erum farin að sjá til lands og framtíð sveitarfélagsins er björt þrátt fyrir sársaukafullar aðgerðir núna. Vonir standa til að einhverjar þeirra séu einungis tímabundnar og hægt verði að draga þær til baka sem fyrst."

Ég hitti kunningja minn um daginn úr höfuðborginni sem er nú ekki í frásögur færandi nema viðkomandi spurði mig „Er komin þjóðstjórn í Árborg? Það heyrist ekkert frá minnihlutanum“. Svör mín voru á þá leið að svo væri nú ekki en við stæðum frammi fyrir risavöxnu ...

Oddviti Áfram Árborgar verður í kvöldfréttum RÚV að ræða skuldavanda sveitarfélagsins og hvernig megi leysa hann.
11/04/2023

Oddviti Áfram Árborgar verður í kvöldfréttum RÚV að ræða skuldavanda sveitarfélagsins og hvernig megi leysa hann.

Íbúafundur á Hótel Selfossi, kl. 17 á morgun til að ræða fjárhagsvanda sveitarfélagsins og leiðirnar út úr honum.Hvet íb...
11/04/2023

Íbúafundur á Hótel Selfossi, kl. 17 á morgun til að ræða fjárhagsvanda sveitarfélagsins og leiðirnar út úr honum.
Hvet íbúa til að mæta!

Sveitarstjórnaryfirvöld í Árborg hafa unnið áætlun í samstarfi við innviðaráðuneytið um endurskipulagningu á rekstri sveitarfélagsins, sem verður kynnt á íbúafundi á Hótel Selfoss klukkan 17 á morgun.

Við viljum heyra frá íbúum sveitarfélagsins alfheidur.e@arborg.is"Það er mikilvægt að við tökum öll höndum saman um að l...
28/03/2023

Við viljum heyra frá íbúum sveitarfélagsins [email protected]
"Það er mikilvægt að við tökum öll höndum saman um að leysa þennan vanda, því við viljum jú öll búa í sjálfbæru og vel reknu sveitarfélagi, þar sem teknar eru upplýstar ákvarðanir og vinnubrögð eru vönduð."

Nú erum við bæjarstjórn, stjórnendur og starfsfólk á fullu við að tryggja ábyrgan og sjálfbæran rekstur Sveitarfélagsins Árborgar til framtíðar. Við erum með KPMG okkur til aðstoðar og einnig var k…

Á 30. fundi Bæjarráðs þann 13.mars sl. fengum við góðar upplýsingar frá mannauðsdeild fyrir mánuðina janúar og febrúar 2...
26/03/2023

Á 30. fundi Bæjarráðs þann 13.mars sl. fengum við góðar upplýsingar frá mannauðsdeild fyrir mánuðina janúar og febrúar 2023
Bæjarfulltrúinn Álfheiður Eymarsdóttir Á lista lagði fram eftirfarandi bókun:

"Fulltrúi Á lista þakkar Mannauðsdeild fyrir greinargóðar upplýsingar.
Við í Á-listanum viljum sjá frekari upplýsingar mánaðarlega, heildaryfirlit fyrir hvert svið bæjarins, raunhækkun kostnaðar vegna veikinda o.s.frv.
Á listinn hvetur einnig til að þessi vinnubrögð verði fyrirmynd að starfsáætlunum og/eða ársskýrslum allra sviða þar sem koma fram lykiltölur starfseminnar, ekki bara mannauðsmál, heldur heildar fjöldi mála afgreiddur, áhersluverkefni komandi árs ásamt árangri liðins starfsárs.
Þetta eru fagleg vinnubrögð, auðveldara að fylgjast með árangri og þróun lykiltalna, starfsfólk er upplýstara um markmið og til hvers er ætlast af þeim og meira gagnsæji íbúa gagnvart starfsemi sveitarfélagsins.
Gagnsæi og fagleg vinnubrögð leiða til meiri aðhalds og aga í fjármálum."
Það er okkar bjargfasta skoðun að ákvarðanataka eigi að byggja á áreiðanlegum gögnum en ekki tilfinningalífi eða geðþóttaákvörðunum bæjarfulltrúa.

Það er mikið fagnaðarefni að á 15. fundi bæjarstjórnar sv.fél. Árborgar var samþykkt tillaga Axels Sigurðssonar, varabæj...
26/03/2023

Það er mikið fagnaðarefni að á 15. fundi bæjarstjórnar sv.fél. Árborgar var samþykkt tillaga Axels Sigurðssonar, varabæjarfulltrúa Áfram Árborg frá 14. fundi um að meta skyldi kosti og galla þess að halda áfram þátttöku í Byggðasamlaginu Bergrisanum og hvort áframhaldandi samstarf sé Árborg til hagsbóta.
Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri fékk verðtilboð og Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista fylgdi tillögunni úr hlaði.

"Lagt er til að samþykkja að fá mat frá HLH Ráðgjöf á kostum og göllum þess að halda áfram þátttöku í Byggðarsamlaginu Bergrisanum og hvort áframhaldandi samstarf sé Árborg til hagsbóta."

Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með 9 atkvæðum, 2 bæjarfulltrúar B-lista sátu hjá.

Við í Áfram Árborg, gleymum engum og viljum að allir fái viðunandi þjónustu á hagkvæman og skilvirkan máta.

Áfram Árborg vill þakka starfsfólki og íbúum Sólheima fyrir frábærar móttökur á Héraðsnefnd Árnesinga á þriðjudaginn var...
13/10/2022

Áfram Árborg vill þakka starfsfólki og íbúum Sólheima fyrir frábærar móttökur á Héraðsnefnd Árnesinga á þriðjudaginn var. Dagurinn var áhugaverður, mikið skeggrætt og farið yfir fjárhagsáætlanir og verkefni sem þarf að vinna íbúum til hagsbóta.
Við í Áfram Árborg erum í lífsgæðabransanum.

Kæru íbúar,nú gefst öllum íbúum tækifæri til að taka þátt í lýðræðinu og koma skoðunum sínum á framfæri við yfirvöld. In...
06/10/2022

Kæru íbúar,
nú gefst öllum íbúum tækifæri til að taka þátt í lýðræðinu og koma skoðunum sínum á framfæri við yfirvöld.
Innviðaráðuneytið , í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni "Vörðum leiðina saman".

Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkum ráðuneytisins. Meginviðfangsefni þeirra verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður nýsamþykkt byggðaáætlun kynnt.

Fundurinn fyrir íbúa Suðurlands verður haldinn þann 11.október nk. kl. 16-18.

Endilega skráið ykkur hér og takið þátt í samtalinu

Innviðaráðuneytið , í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. 

07/09/2022

Við minnum íbúa á bæjarstjórnarfund í dag milli 17 og 19 í Grænumörk. Honum verður streymt og það birtist hlekkur tímanlega á vefsvæði sveitarfélagsins arborg.is

02/07/2022
16/05/2022

Kæru íbúar,
við hjá Áfram Árborg viljum koma einlægum þökkum til íbúa fyrir stuðninginn í nýafstöðnum kosningum.
Við gerðum okkar besta og munum standa vaktina í bæjarstjórn fyrir íbúa Árborgar næstu fjögur árin og í nefndum á vegum hennar.
Við óskum Framsóknarflokknum og Samfylkingu til hamingju með gott kjör og Sjálfstæðismönnum til hamingju með glæsilegan árangur og óskum þeim góðs gengis við stjórn sveitarfélagsins næstu fjögur árin. Við hlökkum til samstarfsins við alla kjörna fulltrúa. Við erum full tilhlökkkunar fyrir komandi kjörtímabil. Það eru spennandi tímar framundan fyrir ört vaxandi samfélag. Við ætlum að gera okkur sérstakt far um að upplýsa íbúa um gang mála.

Enn og aftur þökkum við stuðninginn við Áfram Árborg en viljum ennfremur þakka öllum þeim sem gerðu sér ferð á kjörstað og nýttu sér lýðræðislegan rétt sinn til að kjósa, sama hvað þeir kusu, skiluðu auðu, skrifuðu vísukorn eða hvaðeina. Lýðræðislegur réttur til að kjósa er ekki sjálfsagður.

Kærar kveðjur og endalausar þakkir fyrir traustið og stuðninginn,
f.h. Áfram Árborgar
Álfheiður Eymarsdóttir.

Address

Eyravegur 15b
Selfoss
800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Áfram Árborg posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Áfram Árborg:

Share