12/08/2026
Kæru íbúar, þá er komið að því að almyrkvi á sólu gangi yfir hjá okkur í dag 12. ágúst. Þrátt fyrir mikla óvissu í aðdragandanum þá er búið að undirbúa allt eins og hægt er. Áætlunum verður fylgt en þær eru unnar í víðu samráði við lögreglu, almannavarnir, stjórnvöld og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og eru gerðar í öryggisskyni.
Veðrið er okkur því miður ekki hliðhollt í dag en eins og Stjörnu-Sævar sagði á fyrirlestrinum á bókasafninu á mánudaginn þá verður upplifunin varðandi almyrkvann engu að síður einstök því það verður skyndilegt myrkur, fuglarnir þagna og það kólnar í veðri í nokkrar mínútur. Seltirningar eru því eindregið hvattir til að fylgjast með þessu náttúruundri og njóta sem best heiman frá sér eða á góðum söfnunarsvæðum eins og við Gróttu, á golfvellinum og Valhúsahæð.
Hér eru praktískar upplýsingarnar til áminningar um fyrirkomulagið á Seltjarnarnesi en ítarlegri upplýsingar eru á vef bæjarins: https://www.seltjarnarnes.is/is/ibuar/frettir/almyrkvi-a-solu-12-agust-2026
👉 Götulokanir verða frá kl. 15:00-19:00 (stytt ef aðstæður leyfa)
👉 Suðurströnd við Vivaldi völlinn og út á golfvöll.
👉 Norðurströnd við Lindarbraut og út að Gróttu.
👉 Íbúar Sævargörðum, Sefgörðum, Bygggörðum, Hrólfskálavör og Steinavör hafa fengið bréf á heimili sín varðandi fyrirkomulag að komast til síns heima á lokunartímanum.
👉 Hægt að keyra frá Lindarbraut inn í götur og hverfi út frá henni og sömu leið til baka.
👉 Björgunarsveitin Ársæll stendur vaktina á lokunarpóstunum ásamt því að starfsmenn þjónustumiðstöðvar verða víða við gæslu.
👉 Lögreglan verður með lögregluvakt á Seltjarnarnesi auk þess sem sjúkraflutningabíll verður á staðnum.
👉 Landvörður frá Náttúruverndarstofnun verður staðsettur við Vestursvæðin.
👉 Ráðagerði og veitingastaður Nesklúbbsins verða með veitingasölu og meiri viðbúnað.
👉 Salerni eru við bílastæðið hjá Gróttu og Bakkatjörn, við gulu vörðuna á golfvellinum og á Valhúsahæð.
👉 Öll götuljós hafa verið afvirkjuð á Seltjarnarnesi þegar að almyrkvinn gengur í garð.
👉 Hvetjum íbúa og fyrirtæki til að slökkva á ljósum hjá sér til að draga úr ljósmengun og að upplifunin verði sem allra mest.
👉 Billboard auglýsingaskiltin í strætóskýlum telja niður í almyrkvann.
👉 Hafið sólmyrkvagleraugu tið að vernda augun ef að það mun rofa til og sjást til sólar. Gleraugun skal nota þegar horft er til sólar í deildarmyrkvanum, taka þau af þegar að almyrkvinn gengur yfir og setja upp aftur þegar deildarmyrkvinn tekur aftur við.
NJÓTIÐ ÞESSARAR EINSTÖKU STUNDAR SEM ALLRA BEST Í DAG 🌖🌗🌘🌑🌒🌓🌔
Seltirningar eru í einstakri stöðu til að upplifa þennan sjaldgæfa náttúruviðburð hér heima á Nesinu því miðvikudaginn 12. ágúst nk. almyrkvi á sólu verður