Björgunarsveitin Ísólfur Seyðisfirði

Björgunarsveitin Ísólfur Seyðisfirði Volunteer rescue organisation based in Seyðisfjörður east iceland. Hafir þú áhuga á að styrkja björgunarsveitina Ísólf þá fylgja þær upplýsingar hér að neðan.

Björgunarsveitin Ísólfur Seyðisfirði er hluti af öflugu neti björgunarsveita og slysavarnardeilda Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Starf björgunarsveitarinnar byggist upp á sjálfboðastarfi og er fjármagnað með fjáröflunum og styrkjum. Reikn 0176-26-5157
Kt: 580484-0349

112 er neyðarnúmerið á Íslandi. Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við það beint eru til nokkrar aðrar leiðir til ...
23/07/2026

112 er neyðarnúmerið á Íslandi. Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við það beint eru til nokkrar aðrar leiðir til að fá hjálp.
Hringja í síma 5990112. Vistaðu þetta númer á símanum þínum. Athugaðu að staðsetningarupplýsingar fylgja ekki með þegar hringt er í þetta númer.
112 Iceland appið eða netspjallið á 112.is gefa beint samband við neyðarvörð í gegnum nettengingu. Þessar leiðir koma staðsetningarupplýsingum til skila til neyðarvarða og þú getur sent myndir.
Þú getur hjálpað okkur með því að láta öll vita.
Nánari upplýsingar: https://www.112.is/mikilvaegar-upplysingar-vardandi...
------------------------------------
112 is the main emergency number in Iceland. If you experience difficulty reaching that number there are a few alternatives to get help in an emergency:
You can make emergency calls directly through +35459901112. Save this number on your phone. Please note that location information is not transmitted if you use this number.
112 Iceland app and online chat. You can reach emergency services via text messaging through a data connection. Location information will be transmitted with your messages and you can also send photos. The app can be found in your app stores or you can bookmark this link on your phone: https://www.112.is/en/chat
You can help us by spreading the message.
https://www.112.is/.../important-information-regarding...

112 er neyðarnúmerið á Íslandi. Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við það beint eru til nokkrar aðrar leiðir til að fá hjálp.

Hringja í síma 5990112. Vistaðu þetta númer á símanum þínum. Athugaðu að staðsetningarupplýsingar fylgja ekki með þegar hringt er í þetta númer.

112 Iceland appið eða netspjallið á 112.is gefa beint samband við neyðarvörð í gegnum nettengingu. Þessar leiðir koma staðsetningarupplýsingum til skila til neyðarvarða og þú getur sent myndir.

Þú getur hjálpað okkur með því að láta öll vita.

Nánari upplýsingar: https://www.112.is/mikilvaegar-upplysingar-vardandi-simtol-i-112

------------------------------------

112 is the main emergency number in Iceland. If you experience difficulty reaching that number there are a few alternatives to get help in an emergency:

You can make emergency calls directly through +35459901112. Save this number on your phone. Please note that location information is not transmitted if you use this number.

112 Iceland app and online chat. You can reach emergency services via text messaging through a data connection. Location information will be transmitted with your messages and you can also send photos. The app can be found in your app stores or you can bookmark this link on your phone: https://www.112.is/en/chat

You can help us by spreading the message.

https://www.112.is/en/important-information-regarding-calls-to-112

Kæru vinir og Velunnarar. Félagar okkar Björgunarsveitin Jökull  eru stórhuga og eru á leið í húsbyggingu, ef einhver vi...
13/06/2026

Kæru vinir og Velunnarar.

Félagar okkar Björgunarsveitin Jökull eru stórhuga og eru á leið í húsbyggingu, ef einhver vill aðstoða þá um einhverjar krónur til að koma þaki yfir höfuðið og auðvitað björgunartækin þá má finna upplýsingar hvernig má leggja þeim lið í meðfylgjandi deilingu.

06/04/2026

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austurland sem tekur gildi mánudaginn 6. apríl klukkan 19:00

Útsýnið í Fjarðarheiðarútkalli dagsins, við gerum engan mun á dögunum þegar bregðast þarf við og veita aðstoð, gleðilega...
05/04/2026

Útsýnið í Fjarðarheiðarútkalli dagsins, við gerum engan mun á dögunum þegar bregðast þarf við og veita aðstoð, gleðilega páska kæru vinir og velunnarar.

03/04/2026

Útkall á Fjarðarheiði í dag vegna fastra bíla og í gær líka en í gær fylgdum við nokkrum bílum til byggða báðum megin Fjarðarheiðar í mjög slæmu skyggni og veðri.

Unimog líður bara nokkuð vel að skella sér á Heiðina í ófærð og óveðri. En það fylgdi sögunni frá ökumönnum trukksins að það væri mjög slæmt veður á heiðinni og slóðin þeirra í gegnum skaflana hefði horfið á 15-20 mínútum.

Fjarðarheiðin er búin að vera ófær eða leiðinleg ansi marga daga í röð núna, nú má veðrið gjarnan fara að róa sig aðeins.

Kæru vinir farið varlega um páskahátíðina, athugið færð og veður vel áður en haldið er í ferðalög.

Gleðilega páska.

23/03/2026

www.map.is er í eigu og rekið af Loftmyndum ehf.

11/01/2026

Þá er það næsta gula viðvörun, ekki ólíklegt að Fjarðarheiðin verði eitthvað leiðinleg. Förum varlega fylgjumst með veðurspám og tilkynningum.

www.vedur.is
www.umferdin.is

Uppfært:
Athugið að vindmælir á Fjarðarheiði er ekki virkur og hefur ekki verið síðustu 2 daga, þegar svo er getur verið gott að kíkja inn á Færð á Fjarðarheiði. Upplýsingar frá vegfarendum. Þar er stundum einhverjar upplysingar að hafa frá þeim sem hafa farið þar um.

Gleðilegt ár kæru vinir.   Flugeldsalan okkar er opin í dag frá kl 13:00-16:00  í Sæbóli, það er eitthvað til fyrstur ke...
06/01/2026

Gleðilegt ár kæru vinir. Flugeldsalan okkar er opin í dag frá kl 13:00-16:00 í Sæbóli, það er eitthvað til fyrstur kemur fyrstur fær, allt á að seljast verslunin hættir, allavega fram að næstu áramótum...🙃💥💥💥

Vekjum athygli á að ákveðið hefur verið að fresta áramótabrennu og flugeldasýningu vegna veðurs, nýjar dag og tímasetnin...
31/12/2025

Vekjum athygli á að ákveðið hefur verið að fresta áramótabrennu og flugeldasýningu vegna veðurs, nýjar dag og tímasetningar verða auglýstar síðar.

Förum varlega þegar við skjótum upp skoteldunum um miðnættið og fylgjumst vel með glóð og látum terturnar ekki brenna eftirlitslausar þar sem gróður er þurr undir fölinni og gróðureldar fljótir að breiðast út í vindinum ef þeir mögulega kvikna.

Gleðilegt ár þökkum stuðninginn á árinu sem er að líða

Kveðja
Björgunarsveitin Ísólfur

Vegna slæms veðurútlits hefur verið ákveðið að fresta áramótabrennum og flugeldasýningum á Borgarfirði, Djúpavogi og á Seyðisfirði.

Address

Hafnargata 15
Seydisfjorður

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Björgunarsveitin Ísólfur Seyðisfirði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Björgunarsveitin Ísólfur Seyðisfirði:

Shortcuts

Share