28/07/2026
Hluti af viðtali við Ragnar Jónasson á RUV :) Forstöðukona var í fríi og missti því miður af þessu :(
Brugðið að sjá Dan Brown á bókasafninu á Siglufirði
Aðdáendur Ragnars úti í heimi hafa sumir komið til Íslands og skoðað sögustaði bókarinnar. Til dæmis kom hingað til lands bandarískur áhrifavaldur sem vildi skoða Siglufjörð vegna bóka hans. Ragnar fékk dýrmætt tækifæri til að fara með honum.
Mér fannst þetta ótrúlega fallegt svo ég fór með honum og labbaði með honum um bæinn, sýndi honum sögustaðina sem ég vildi að ég gæti gert oftar.
Það hefur hann einnig gert með glæpasagnahöfundinum Dan Brown, sem er að hluta ástæða þess að hann byrjaði sjálfur að skrifa glæpasögur.
Ég hef gert þetta örsjaldan þegar ég get, síðast með Dan Brown, manni sem kom mér eiginlega óbeint í það að skrifa út af þessari samkeppni. Hann var í fríi, þetta var í kringum COVID og eiginlega engin önnur lönd opin.
Dan Brown var vel tekið á Siglufirði en einhverjir ætluðu ekki að trúa eigin augum.
Það ætlaði að detta andlitið af bókaverðinum á Siglufirði þegar ég færði mig frá og sýndi að þarna væri Dan Brown kominn á bóksafnið á Siglufirði.