Sveitarfélagið Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd Sveitarfélagið Skagaströnd

27/07/2026

Við endurtökum við leikinn frá því í fyrra og veitum umhverfisviðurkenningar 🏡🌿

Viðurkenningar verða veittar fyrir:
🏘️ Snyrtilegustu og best hirtu götuna
🌺 Snyrtilegasta og fallegasta garðinn
🏢 Snyrtilegasta fyrirtækið

🏆 Verðlaunahafar síðasta árs voru:
Ránarbraut – Snyrtilegasta og best hirta gatan Bogabraut 13 – Snyrtilegasti og fallegasti garðurinn Salthúsið (Salthús Guesthouse) – Snyrtilegasta fyrirtækið

✨ Við hvetjum alla íbúa, húsfélög og fyrirtæki til að taka höndum saman og leggja sitt af mörkum til að gera fallega bæinn okkar enn fallegri.

Tilkynnt verður um úrslit 1. september næstkomandi.

Sunnudaginn 19. júlí var sannkölluð hlaupaveisla á Skagaströnd í boði Atwork og Ungmennafélagsins Fram. Boðið var upp á ...
24/07/2026

Sunnudaginn 19. júlí var sannkölluð hlaupaveisla á Skagaströnd í boði Atwork og Ungmennafélagsins Fram. Boðið var upp á fjórar vegalengdir, 1 km skemmtiskokk, 5 og 10 km götuhlaup og 18 km utanvegahlaup en öll hlaupin voru ræst frá höfninni. 70 hlauparar voru skráðir til leiks og voru margir að stíga sín fyrstu skref á meðan aðrir voru þaulvanir. Hlaupararnir áttu það þó allir sameiginlegt að njóta þess að hlaupa í góðri samveru. Veðrið var með ágætum og sólin kíkti aðeins á yngstu hlauparana í skemmtiskokkinu.

Það lögðu margir hönd á plóg við undirbúning og framkvæmd hlaupsins. Björgunarsveitin Strönd sá m.a. um gæslu og var í viðbragðsstöðu vegna utanvegahlaupsins, fjölmargir sjálfboðaliðar sinntu brautargæslu og öðrum verkefnum. Kvennfélagið Eining riggaði upp kökuhlaðborði að hlaupi loknu sá til þess að enginn fór svangur heim.

Sveitarfélagið þakkar Tómasi Ragnarz, Fríðu Rún Þórðardóttur og Ungmennafélaginu Fram fyrir framtakið og öllum sjálfboðaliðum sömuleiðis fyrir þeirra framlag.

Takk fyrir algjörlega frábæran hlaupadag – sjáumst að ári!

Á morgun standa Atwork og Ungmennafélagið Fram fyrir Á Fram Atwork Skagastrandarhlaupinu með dyggri aðstoð kvenfélagsins...
18/07/2026

Á morgun standa Atwork og Ungmennafélagið Fram fyrir Á Fram Atwork Skagastrandarhlaupinu með dyggri aðstoð kvenfélagsins Einingar og Björgunarsveitarinnar Strandar.🏅
Hlaupið verður frá höfninni og um götur bæjarins en boðið verður upp á 5 og 10 km götuhlaup, 1 km skemmtiskokk fyrir börn og byrjendur sem og 18 km utanvegahlaup í kringum Spákonufell.
Ræsing í utanvegahlaupinu verður kl. 14:00, í 5 og 10 km hlaup kl. 14:10 og 1 km hlaupið verður ræst kl. 15:30.
Meðfylgjandi er kort af hlaupaleiðinni í 5km og 10km og eins og sjá má verður hlaupið á flestum götum bæjarins og upp Fellsbraut.
Hlaupahaldarar biðja ökumenn um að gæta varúðar og virða leiðbeiningar brautarvarða í þeim götum sem um ræðir. Vegna umferðar hlaupara frá bænum og að Spákonufelli í upphafi hlaups og síðan frá fjallinu og afturn inn í bæinn mun björgunarsveitin viðhafa vegagæslu á meðan hlauparar fara yfir þjóðveginn. Við biðjum vegfarendur um að virða leiðbeiningar björgunarsveitarmanna svo að allir komist heilir heim ❤️
Allir bæjarbúar eru velkomnir í viðburðinn og hvattir til að koma út á götu og hvetja þátttakendur og fagna þeim í markinu🎉🎉

Það má enn skrá sig! En ef þú ætlar hvorki að hlaupa né hvetja væri frábært að fá fleiri í brautargæslu 😊
Endilega hafið samband við Valtýr Sigurðsson fyrir frekari upplýsingar um brautargæslu.

Eitt enn, endilega takið myndir af hlaupunum - við ætlum að safna myndefni fyrir næsta ár! 🥰

Ólafur Þór Ólafsson hefur verið valinn úr hópi 16 umsækjenda til að taka við starfi sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skaga...
16/07/2026

Ólafur Þór Ólafsson hefur verið valinn úr hópi 16 umsækjenda til að taka við starfi sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagastrandar. Gert er ráð fyrir að sveitarstjórn staðfesti ráðninguna á fundi sínum þann 22. júlí næstkomandi. Ólafur er stjórnmálafræðingur að mennt og með MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hann hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og hefur t.d. verið forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar og verið sveitarstjóri bæði í Reykhólahreppi og Tálknafjarðarhreppi. Ólafur hefur einnig víðtæka reynslu af fræðslumálum en hann hefur verið grunnskólakennari, íþrótta- og tómstundafulltrúi og forstöðumaður Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum. Þá hefur hann gengt ýmsum trúnaðar- og nefndastörfum síðastliðin tíu ár.

Ólafur átti fund með sveitarstjórn á fallegum sumardegi þar sem Skagaströnd skartaði sínu fegursta. Honum leist vel á bæinn og er spenntur að kynnast íbúum í leik og starfi. Hann tekur til starfa 1. ágúst næstkomandi og bjóðum við hann hjartanlega velkominn 🌞

15/07/2026

Uppfært: Viðgerðum er lokið og opnað hefur verið fyrir vatn.

Lokað fyrir vatn 💦

Það fór vatnslögn í sundur á Ránarbraut rétt í þessu og á meðan unnið er að viðgerðum þarf að loka fyrir vatn. Lokað verður fyrir vatn á Ránarbraut og hluta Bogabrautar og Hólabrautar.

Ekki er vitað hversu langan tíma viðgerðin tekur, afsakið óþægindin sem lokunin kann að valda.

Við leitum að matráði í mötuneyti Höfðaskóla!Kanntu brauð að baka? 🍞Og að elda góðan mat fyrir káta krakka? 😊
12/07/2026

Við leitum að matráði í mötuneyti Höfðaskóla!
Kanntu brauð að baka? 🍞
Og að elda góðan mat fyrir káta krakka? 😊

Matráður ber ábyrgð á matseld, matseðlum, innkaupum, skipulagningu og framkvæmd starfsins í eldhúsinu ásamt frágangi og þrifum. Elda þarf mat fyrir um 60 nemendur sem og starfsmenn skólans og er mötuneytið vel útbúið og staðsett í Félagsheimilinu Fellsborg.

Við leitum að aðalbókara sveitarfélagsins Skagastrandar! Ert þú hann? Eða veistu um einhvern efnilegan?
12/07/2026

Við leitum að aðalbókara sveitarfélagsins Skagastrandar! Ert þú hann? Eða veistu um einhvern efnilegan?

Leitað er að áhugasömum og vandvirkum aðalbókara til starfa fyrir Sveitarfélagið Skagaströnd. Á skrifstofunni starfa þrír starfsmenn að sveitarstjóra meðtöldum og er um að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf. Um er að ræða 100% stöðu og er æskilegt að viðkomandi geti haf...

Hlaupum saman af stað! 🌞Á Fram Atwork - Skagastrandarhlaupið fer fram sunnudaginn 19. júlí nk. kl. 14:00.Boðið er upp á ...
11/07/2026

Hlaupum saman af stað! 🌞
Á Fram Atwork - Skagastrandarhlaupið fer fram sunnudaginn 19. júlí nk. kl. 14:00.

Boðið er upp á 5 og 10 km götuhlaup, 1 km skemmtiskokk og um 18 km utanvegahlaupið ATWORK MEGA TRAIL með 400 m hækkun.
Hlaupið er FRÍ vottað að skemmtiskokki undanskildu.

Við hvetjum ykkur til að taka þátt og njóta þess að hlaupa í fallegu umhverfi ❤️

Hér er beinn hlekkur á skráningarsíðu: https://netskraning.is/skagastrandarhlaupid/?new_order=1

Address

Túnbraut 1-3
Skagaströnd
545

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00

Telephone

4552700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sveitarfélagið Skagaströnd posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share