L-Listinn Stykkishólmi

L-Listinn Stykkishólmi FYLGSTU MEÐ - HAFÐU ÁHRIF

03/02/2019

Till mina barnbarn ❤️

Við birtum hér bréfið okkar úr Stykkishólmspósti vikunnar. Hópurinn kom saman í gær og grillaði. Allir glaðir og við átt...
01/06/2018

Við birtum hér bréfið okkar úr Stykkishólmspósti vikunnar. Hópurinn kom saman í gær og grillaði. Allir glaðir og við áttum góða stund saman.

Þá hefur verið kosið í bæjarstjórnarkosningum 2018 og niðurstaðan liggur fyrir. Við í L-listanum erum að sjálfsögðu ekkert ánægð með okkar útkomu en við stefndum á að ná tveimur mönnum inní bæjarstjórn. Því miður munaði tveimur atkvæðum á að Ragnar Már Ragnarsson...

600 talin...
26/05/2018

600 talin...

Kl. 23:15 Hafa verið talin 600 atkvæði í Stykkishólmi Þau skiptast þannig: H-listi: 258 atkvæði L-listi: 147 atkvæði O-listi: 179 atkvæði Auðir: 11 atkvæði Ógildir: 5 atkvæði

26/05/2018
Gítar og gaman
26/05/2018

Gítar og gaman

Tekið í pitro a kosningaskrifstofu. Stanslaust renneri og gaman!
26/05/2018

Tekið í pitro a kosningaskrifstofu. Stanslaust renneri og gaman!

26/05/2018

Kosningakaffi L-listans er á sínum stað í gamla Apótekinu kl. 11-19 og kosningavaka á sama stað frá kl. 22.

26/05/2018

Kæru kjósendur Stykkishólms nú göngum við til kosninga. Við í L-listanum höfum lagt fram skýra og metnaðarfulla stefnuskrá sem við leggjum í dóm ykkar kjósenda. Vilji fólk sjá breytingar þá óskum við eftir stuðningi ykkar.

Við þökkum góðar viðtökur og vonum að þið njótið dagsins,

bestu kveðjur,
L-LISTINN, LISTI ALLRA HÓLMARA.

Í 2. sæti L-listans er Ragnar Már Ragnarsson 45 ára, sjálfstætt starfandi byggingafræðingur sem hönnuður einnig við efti...
25/05/2018

Í 2. sæti L-listans er Ragnar Már Ragnarsson 45 ára, sjálfstætt starfandi byggingafræðingur sem hönnuður einnig við eftirlitsstörf.

Ragnar hefur setið í bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar sl. 4 ár.

Maki: Þórný Alda Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur og eigum við tvö börn.

Ég lauk námi í byggingafræði frá Danmörku árið 2004, einnig lauk ég meistaraprófi í verkefnastjórnun frá HÍ árið 2007.
Ég hef búið í Hólminum frá 2013 og hefur það verið ákaflega góður tími. Börnunum líður vel og Þórný nýtur sín í vinnunni á spítalanum. Ég tók sæti í bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar árið 2014 og má því segja að ég hafi setið í bæjarstjórn 80% af tímanum sem ég hef búið hérna. Það hefur verið mjög lærdómsríkur tími að sitja í bæjarstjórn. Ótal mörg mál komu inn á borð bæjarstjórnar á kjörtímabilinu sem senn er að líða, og var það ómetanlegt að hafa reynslumikið fólk í kringum sig þegar fjallað var um mörg þeirra.

Vegna menntunar minnar að þá eru málaflokkar sem standa mér nærri og eru það Skipulags-og byggingarmál og atvinnumál. Ég tel að við þurfum að skapa aðstæður fyrir einstaklinga og fyrirtæki þannig að vænlegt sé að byggja í Hólminum. Það er nauðsynlegt að ráðinn verði markaðs- upplýsinga og menningarfulltrúi til bæjarins sem muni markaðssetja og kynna bæinn okkar með þeim hætti að íbúum, fyrirtækjum og ferðamönnum muni fjölga, bænum til hagsbóta.

Í fjórða sæti L-listans er Ingveldur Eyþórsdóttir, 50 ára félagsráðgjafi.Starf: Ég lauk BA og MA prófi frá HÍ í félagsrá...
24/05/2018

Í fjórða sæti L-listans er Ingveldur Eyþórsdóttir, 50 ára félagsráðgjafi.

Starf: Ég lauk BA og MA prófi frá HÍ í félagsráðgjöf, ásamt diplómu í opinberri stjórnsýslu. Starfa nú sem félagsráðgjafi hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga,

Ég á fjögur börn, og bráðum þrjú barnabörn. Ég er fædd og uppalinn í Hólminum og á mínar rætur mínar að rekja úr Breiðafjarðareyjum og af Snæfellsnesi.

Ég hef í gegnum tíðina haft mikinn áhuga á málefnum er snúa að bænum okkar, var í 7. sæti L-listans fyrir 8 árum, hef setið í hinum ýmsu nefndum en lengst af í fræðslunefnd og félagsmálanefnd Snæfellinga. En seta mín í þeirri nefnd varð til þess að ég ákvað að læra félagsráðgjöf þar sem barnavernd og málefni fatlaðra eru mín helstu viðfangsefni.

Í 7. sæti L-listans er Jón Einar Jónsson, 43 ára líffræðingurmaki Sigurbjörg A. Henrysdóttir, við eigum 3 dætur, 1 son, ...
24/05/2018

Í 7. sæti L-listans er Jón Einar Jónsson, 43 ára líffræðingur
maki Sigurbjörg A. Henrysdóttir, við eigum 3 dætur, 1 son, 2 dóttursyni og sá þriðji á leiðinni....

Helstu áhugasvið inn í bæjarmálum eru umhverfismál og menntamál. Ég sat í skólanefnd Stykkishólms síðasta kjörtímabil.

Ég flutti í Stykkishólm 2007 til að starfa við Rannsóknasetur Háskóla Íslands, þar sem við merkjum fugla, sigtum drullu og skrifum greinar og styrkumsóknir. Hér kynntist ég konunni og börnunum, Breiðafirði, Þorrablótum, golfi, Lionsklúbbi, körfubolta, hjólreiðum í mótvindi upp brekku og urmul góðra félaga og samstarfsmanna. Hér lætur fólk sig málin varða og mér finnst lærdómsríkt og upplífgandi að taka þátt í því. Í bæjarmálum vil ég sjá samstarf á breiðum grundvelli þar sem fólkið skiptir mestu máli, hættum að draga hvert annað í dilka eftir flokkum og listum.

23/05/2018

Við minnum á opna framboðsfundinn í kvöld, vonandi mæta sem flestir Hólmarar. Að sjálfsögðu verður opið á kosningaskrifstofunni eftir fund!

Address

Hafnargötu 1
Stykkishólmur
340

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when L-Listinn Stykkishólmi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to L-Listinn Stykkishólmi:

Share