Amtsbókasafnið í Stykkishólmi

Amtsbókasafnið í Stykkishólmi Amtsbókasafnið í Stykkishólmi er almenningsbókasafn sem bíður upp á fjölbreyttan safnkost, góða þjónustu og notalegt andrúmsloft.

📢Á morgun, fimmtudaginn 20. ágúst, opnum við ekki fyrr en kl. 15:30.Venjuleg opnun, frá 14 til 17 á miðvikudag og föstud...
19/08/2026

📢Á morgun, fimmtudaginn 20. ágúst, opnum við ekki fyrr en kl. 15:30.

Venjuleg opnun, frá 14 til 17 á miðvikudag og föstudag og fullt til af nýjum bókum 📚

Vinningshafi júlímánaðar í sumarlestrinun er Jóhanna Ingibjörg. Hún kom í dag og sótti glaðninginn sinn 😃Á skólasetningu...
18/08/2026

Vinningshafi júlímánaðar í sumarlestrinun er Jóhanna Ingibjörg. Hún kom í dag og sótti glaðninginn sinn 😃

Á skólasetningunni á mánudaginn ætlum við að draga út 3 heppna lesendur svo það er um að gera að skila inn sínum miðum sem fyrst!

Þriðjudaginn 18. ágúst frá 18:00 - 20:00 verður haldin ókeypis vinnustofa um breytingar á landslagi og arfleifð Snæfells...
17/08/2026

Þriðjudaginn 18. ágúst frá 18:00 - 20:00 verður haldin ókeypis vinnustofa um breytingar á landslagi og arfleifð Snæfellsness, framtíðina og tengsl loftslagsbreytinga.

Niðurstöður staðbundinna rannsókna á Snæfellsnesi verða kynntar og umræður í kjölfarið. Boðið verður upp á kaffi og kex.
Verið öll velkomin!

Verkefnið er á vegum doktorsnema frá Háskólanum í Dublin.
Nánari upplýsingar um viðburðinn í athugasemdum.

Lalli töframaður kemur í heimsókn til okkar sunnudaginn 16. ágúst. Fyrst verður hann með töfranámskeið kl. 10 og svo töf...
15/08/2026

Lalli töframaður kemur í heimsókn til okkar sunnudaginn 16. ágúst. Fyrst verður hann með töfranámskeið kl. 10 og svo töfrasýningu kl. 12. 🧙‍♂️ Sjá viðburði í athugasemdum 👇

Dagurinn sem við höfum beðið eftir er í dag! Hér eru bækur sem geta frætt þig betur um það magnaða náttúrufyrirbæri sem ...
12/08/2026

Dagurinn sem við höfum beðið eftir er í dag! Hér eru bækur sem geta frætt þig betur um það magnaða náttúrufyrirbæri sem sólmyrkvar eru. ☀️🌑

Það verður opið hjá okkur frá 14 til 17 í dag og svo hægt að skella sér beint út að fylgjast með og upplifa!

Vegna sumarleyfa verður lokað hjá okkur alla þessa viku. Við opnum svo endurnærð 11. ágúst 🌞
03/08/2026

Vegna sumarleyfa verður lokað hjá okkur alla þessa viku. Við opnum svo endurnærð 11. ágúst 🌞

27/07/2026

Vikuna 4.-7. ágúst verður lokað hjá okkur. Því er um að gera að nýta þessa viku til að ná sér í lesefni og spil. Fá límmiða í sumarlestrarheftið sitt. Eða kannski lita nokkrar myndir. 🐏📖

Á sumrin gefst góður tími fyrir breytingar. Við skiptum um stað á ljóðabókunum og ástarsögunum og á bókum á ensku og ung...
21/07/2026

Á sumrin gefst góður tími fyrir breytingar. Við skiptum um stað á ljóðabókunum og ástarsögunum og á bókum á ensku og unglingabókunum. Hér eru myndir en sennilega er best að þið kíkið bara við og sjáið breytingarnar með eigin augum 😉

Það er opið þriðjudaga til fimmtudaga frá 14 til 17 og alltaf heitt á könnunni og myndir að lita, bangsar og spil ☕️ 🖍️🐻🎲

Í safnkostinum okkar leynast bækur sem hafa ekki lánast mjög lengi. Eru þær ennþá áhugaverðar en bara gleymdar og týndar...
15/07/2026

Í safnkostinum okkar leynast bækur sem hafa ekki lánast mjög lengi. Eru þær ennþá áhugaverðar en bara gleymdar og týndar í hillunum eða eru þær börn síns tíma?

Það var mikið fjör hjá okkur á þriðjudaginn þegar Gunnar Helgason kom í heimsókn. Hann sagði frá þeim bókum sem hann hef...
02/07/2026

Það var mikið fjör hjá okkur á þriðjudaginn þegar Gunnar Helgason kom í heimsókn. Hann sagði frá þeim bókum sem hann hefur skrifað og er að skrifa og las upp vel valda kafla. 📖

Hann dró líka út vinningshafa júnímánaðar. Það var hún Ingunn Arna sem fékk glaðning. 🏆

Það verður líka dregið úr pottinum í lok júlí og 3 miðar þegar sumarlestrinum líkur í lok ágúst. 🍀

Address

Borgarbraut 6a
Stykkishólmur
340

Opening Hours

Tuesday 14:00 - 17:00
Wednesday 14:00 - 17:00
Thursday 14:00 - 17:00
Friday 14:00 - 17:00

Telephone

+3544338160

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Amtsbókasafnið í Stykkishólmi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Amtsbókasafnið í Stykkishólmi:

Shortcuts

Share

Category