11/08/2026
Árleg æðarungatalning fór fram í 20. sinn í ár. Ekið er frá Reykhólum að Brjánslæk og svo frá Stykkishólmi að Grundarfirði. Í gamla daga notuðum við ferju en það er bara ekkert hægt að stóla á svoleiðis lengur, þannig að við keyrðum báðar leiðir.
Fjöldi unga og kollna var nokkuð svipaður og undanfarin ár, ef litið er til tímabilsins frá 2018. Í júní sáust 733 kollur með 921 unga, sem gerir 1,3 unga á kollu, sem var alveg í meðallagi 2007-2026.
Hins vegar fækkaði ungum mikið í júlí, og sáust þá 568 kollur með 198 unga, sem gerir 0.35 unga á kollu, sem er undir meðaltali (0,53 ungi á kollu). Þarna munar 0,9 ungum á kollu, sem er með mesta mun milli talninga sem sést hefur á tímabilinu. Frá og með 2018 hefur fjöldi unga verið undir 200 í þessari talningu.
Annað sem vakti athygli í júlí var hversu smáir ungarnir voru, þeir voru flest allir á bilinu einn þriðji til helmingur af stærð kollu, en á þessu tíma má oft sjá unga sem eru þrír fjórðu hlutar af stærð kollu eða nær full vaxnir. Í lok júlí eru stærstu ungarnir þeir sem skriðu úr eggi í júní, en þeir minni í júlí. Varptími æðarkollna er breytilegur, þær fyrstu verpa um miðjan maí eða fyrr, en sumar verpa seint í júní eða síðar.
Hlutfall unga á kollu hefur verið stöðugt 2007-2026 og það er nokkuð sterk fylgni milli hlutfallsins í júní og júlí, þannig að það skiptir talsvert miklu máli að það gangi vel að leiða út í júní, án þess að það þýði endilega sterkt ungahlutfall í júlí.