Tindfjallaskáli

Tindfjallaskáli Tindfjallaskáli er skáli Íslenska alpaklúbbsins (ÍSALP) í Tindfjöllum. Svæðið er vinsælt leiksvæði fjalla- og skíðamanna og fyrir æfingar björgunarsveita.

Skálinn er nátengdur sögu fjallamennsku á Íslandi og mikilvægur fulltrúi annars hverfulla mannvirkja þessa sértæka menningararfs. Tindfjallaskáli var byggður af félaginu Fjallamenn (stofnað 1939) sem Guðmundur Einarsson frá Miðdal var í forsvari fyrir. Guðmundur hannaði útlit skálans og Karl Sæmundsson burðarvirki. Þorsteinn Þorsteinsson yfirsmiður hjó grindina í skálann í Reykjavík úr harðfuru se

m rak á Skógafjöru. Byggingu skálans var lokið árið 1941 og er hann 22 fermetrar að stærð. Starfsemi Fjallamanna minnkaði til muna eftir lát Guðmundar Einarssonar árið 1963 og hún lagðist endanlega af í kringum 1970. Frá 1979 hefur Ísalp haft skálann til varðveislu. Skálinn stendur í um 800 m.y.s. og er einn fyrsti háfjallaskálinn sem byggður var á Íslandi og þrátt fyrir veður og vinda stóð hann enn árið 2008. Sambærilegur skáli var byggður á Fimmvörðuhálsi af Fjallamönnum en hann eyðilagðist og var síðan rifinn. Þannig að skálinn hefur í marga áratugi þjónað fjallamönnum og björgunarsveitum landsins. Flestar björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu hafa haldið nýliðanámskeið sín í fjallamennsku í nágrenni skálans og má því segja að í Tindfjöllum hafi stór hluti íslenska fjallamanna hlotið eldskírn sína. Enda bjóða Tindfjöllin uppá mikla möguleika til hvers kyns klifurs og skíðunar.

Address

Tindfjöll
Tindfjöll
860

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tindfjallaskáli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Tindfjallaskáli:

Shortcuts

Share