Kakalaskáli

Kakalaskáli Á staðnum er sögu- og listasýning frá átakatímum 13. aldar. Einnig er þar Sviðsetningu Haugsnesbardaga 1246, stórt útilistaverk gert af Sigurði Hansen.

Sturlungaöldin einkenndist af miklum átökum milli helstu höfðingjaætta Íslands um eignir og völd en endalok tímabilsins miðast við árið 1262 þegar Íslendingar gengu Noregskonungi á hönd með Gamla sáttmála. Skagafjörður varð miðpunktur þessara átaka og þar voru háðar nokkrar af stórorrustum Sturlungaaldar. Meðal þeirra var Haugsnesbardagi sem fram fór þann 19. apríl 1246 og er hann mannskæðasti bar

dagi sem háður hefur verið á Íslandi en þar féllu yfir eitt hundrað manns. Sigurður Hansen bóndi í Kringlumýri hefur alla tíð verið áhugamaður um Sturlunga sögu og haft sögusvið Haugsnesbardaga fyrir augum sér en hann fékk söguna ekki til að ganga upp í landslaginu. Árið 2009 byrjaði hann að safna saman stórum steinum á þeim slóðum sem bardaginn á að hafa farið fram og raða þeim upp eins og hann sá fyrir sér að fylkingarnar hefðu verið augnabliki áður en þeim laust saman. Sviðsetning Sigurðar telur yfir þrettán hundruð stóra grjóthnullunga, sem vega samtals um 600 tonn, og táknar hver steinn einn þátttakanda bardagans. Sumir steinanna eru merktir með krossi til að tákna þá sem féllu.

Í Kringlumýri hefur Sigurður breytt útihúsum í samkomusal er nefnist Kakalaskáli og er það hlýlegur, timburklæddur salur sem nýtist undir ýmiskonar viðburði. Þar hefur verið boðið upp á fyrirlestra sem tengjast sögu og menningu, ráðstefnur, málþing og tónleika en hljómburðurinn í skálanum þykir sérlega góður. Kakalaskáli hentar jafnframt vel undir veislur, s.s. brúðkaup- og fermingaveislur.

Á staðnum er einnig sögu- og listasýning með hljóðleiðsögn frá átakatímum 13. aldar. Þar er m.a. varpað ljósi á sögu höfðingja Sturlunga, Þórðar kakala. 14 listamenn frá 10 þjóðlöndum unnu listaverkin á sýningunni. Pantanir inn á sýninguna og leiga á sal fara fram í síma 899 2027 (Sigurður) og 865 8227 (María) eða í gegnum netfangið [email protected]. ENGLISH / KAKALASKÁLI

Only 5 minutes drive from the ring road. History and Art Exhibition about the turmoils of 13th century Iceland: The exhibition gives insight into the tumultuous 13th century Iceland, focusing on the story of the Sturlungar clan chieftain Thordur kakali. The art exhibition is the fruit of on-site work by 14 artists from 10 countries, uniquely portraying the events of the era. Audio guides are available in several languages. The Staging of the Battle of Haugsnes (The Stone Army) - large scale outdoor installation: The bloodiest battle in the history of Iceland is undoubtedly the Battle of Haugsnes, April 19th 1246, which claimed 111 lives. The battle occurred during times of great turmoil in 13th century Iceland, as told by the Sturlunga Saga. The owner of Kakalaskáli and history enthusiast, Sigurður Hansen, has arranged 1320 rocks, a total of 600 tons, each representing a warrior on the fateful morning of the battle, moments before the two feuding clans clashed. Those who died in battle and the following days are marked with crosses. María's Workshop and Antiques Shop: Situated at Kakalaskáli and open during the same hours. Open by appointment until 31st of May 2023.


Entrance for History and Art Exhibition:
3200 IKR
2700 IKR - seniors
Free - children younger than 12

Entrance for The Staging of the Battle of Haugsnes:
Free

Please call +354 6708822 for further information

19/08/2026

Kakalaskáli er opinn samkvæmt samkomulagi fyrir hópa frá 20. ágúst fram í maí 2027. // Kakalaskáli is open upon request for groups from August 20th until May 2027.

Skemmtilegt námskeið í Kakalaskála um síðustu helgi.
13/08/2026

Skemmtilegt námskeið í Kakalaskála um síðustu helgi.

03/08/2026
Opið alla daga nema mánudaga kl. 13-17. Verið velkomin í Kakalaskála. // Open every day except Monday from 1-5pm. Welcom...
23/06/2026

Opið alla daga nema mánudaga kl. 13-17. Verið velkomin í Kakalaskála. // Open every day except Monday from 1-5pm. Welcome to Kakalaskáli.

Spennandi dagsferðir á Sturlungaslóð og margt fleira sem vert er að skoða.
16/06/2026

Spennandi dagsferðir á Sturlungaslóð og margt fleira sem vert er að skoða.

Áskaffi, eins og hjá ömmu. Þjónusta við hópa í félagsheimilinu Héðinsminni. Ferðir um Matarslóðir Skagafjarðar. Góðgæti til sölu. Auður Herdís Sigurðardóttir 699 6102.

Mælum með 😊
12/06/2026

Mælum með 😊

Fyrsta sumaropnunarhelgin hjá okkur á Hólum. Við erum spennt og hlökkum mikið til að taka á móti ykkar hér í sumar ❤️

02/06/2026

Sumaropnun Kakalaskála er frá og með 2. júní. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. // Kakalaskáli is open for the summer from the 2nd of June. Open every day except Monday from 1-5 pm.

24/04/2026

🌼Gleðilegt sumar 🌼

Við ætlum að bjóða uppá brunch í Kakalaskála á sunnudaginn frá kl 12-15 💛
ATH- Það verður að panta borð - í síma 868 5050 eða með tölvupósti [email protected]
Hægt er að fara á sýninguna og einnig er opið í búðinni hjá Maríu ⚘️ Sjáumst

Einnig opið hjá Maríu og hægt að bregða sér á sögu- og listasýninguna frá átakatímum 13. aldar. Verið velkomin 😊
24/04/2026

Einnig opið hjá Maríu og hægt að bregða sér á sögu- og listasýninguna frá átakatímum 13. aldar. Verið velkomin 😊

🌼Gleðilegt sumar 🌼

Við ætlum að bjóða uppá brunch í Kakalaskála á sunnudaginn frá kl 12-15 💛
ATH- Það verður að panta borð - í síma 868 5050 eða með tölvupósti [email protected]
Hægt er að fara á sýninguna og einnig er opið í búðinni hjá Maríu ⚘️ Sjáumst

Address

Varmahlíð
560

Opening Hours

Tuesday 13:00 - 17:00
Wednesday 13:00 - 17:00
Thursday 13:00 - 17:00
Friday 13:00 - 17:00
Saturday 13:00 - 17:00
Sunday 13:00 - 17:00

Telephone

+3548658227

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kakalaskáli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Kakalaskáli:

Shortcuts

Share