Lögreglan í Vestmannaeyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum, Faxastígur 42, 900 Vestmannaeyjar. Ef þú þarft aðstoð lögreglu - hringdu þá í 112.

11/08/2026

VITNI ÓSKAST

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás er átti sér stað á Brekastíg um kl. 19:30, laugardaginn 1. ágúst s.l. Þar var brotaþoli sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum aðila sem svo fór í burtu. Brotaþoli var fluttur af vettvangi í sjúkrabifreið.

Þau sem urðu vitni að líkamsárásinni eða hafa einhverjar upplýsingar um hana eru beðin um að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2090 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected].

🎆Óskilamunir frá Þjóðhátíð 2026!🎆Opnunartími á lögreglustöðinni er á milli 09:00-15:00 alla virka dagaAllir óskilamunir ...
06/08/2026

🎆Óskilamunir frá Þjóðhátíð 2026!🎆

Opnunartími á lögreglustöðinni er á milli 09:00-15:00 alla virka daga

Allir óskilamunir sem eru í vörslu lögreglu eru á myndum hér fyrir neðan.

Sími: 444-2090

03/08/2026

Maðurinn sem leitað var að er fundinn. Þökkum veitta aðstoð

Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsir eftir Hauki Haukssyni en ekkert hefur sést til ferða hans síðan 07:00 í morgun.Haukur e...
03/08/2026

Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsir eftir Hauki Haukssyni en ekkert hefur sést til ferða hans síðan 07:00 í morgun.

Haukur er grannvaxinn 183 sm. á hæð og var íklæddur ljósdrapplituðum buxum, ljósri hettupeysu og svörtum stuttum jakka yfir. Hann hafði meðferðis lítinn svartan bakpoka.

Þeir sem hafa orðið hans varir eru beðnir um setja sig í samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í gegnum 112.

03/08/2026

Seinasti dagur þjóðhátíðar fór fram í blíðskaparveðri og hafði lögregla í ýmis horn að líta þegar leið á nóttina og gista fimm fangageymslur. Tilkynntar voru tvær líkamsárásir og upp komu fimm fíkniefnamál. Þá var sparkað í lögreglumann við skyldustörf og sjúkraflutningamaður sleginn. Hátíðargestir eru byrjaðir að týnast frá Vestmannaeyjum og viljum við þakka þeim komuna og óskum þeim góðra ferðar til síns heima.

02/08/2026

Talsverður fjöldi var við skemmtun í Herjólfsdal sl. nótt í blíðskaparveðri og hafði lögregla í ýmis horn að líta sl. nótt en s*x gista fangageymslu. Eins og áður er haldið uppi stífu fíkniefnaeftirliti og komu upp 9 fíkniefnamál en eitt af þeim málum er til rannsóknar vegna gruns um sölu fíkniefna. Þá voru tilkynntar tvær minniháttar líkamsárásir og ýmiss ölvunartengd verkefni komu til kasta lögreglu.

01/08/2026

Þjóðhátíð á að vera örugg fyrir öll. 💙

Kynferðisbrot, áreitni og hegðun sem fer yfir mörk annarra á aldrei rétt á sér.

Ef brotið er á þér, þú sérð eitthvað gerast eða hefur áhyggjur af einhverjum – segðu frá. Hjálp er til staðar og þú þarft ekki að standa ein, einn eða eitt í þessu.

Í neyð, hringdu í 112

01/08/2026

Ef eitthvað kemur upp á á Þjóðhátíð – láttu vita. 💙

Leitaðu til lögreglu, gæslu, heilbrigðisstarfsfólks eða annarra viðbragðsaðila á svæðinu.

01/08/2026

Setning Þjóðhátíðar fór fram í gær og var blíðskapar veður í Herjólfsdal þar sem Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands blessaði hátíðina. Lögreglan heldur úti öflugu fíkniefnaeftirliti eins og ávallt á Þjóðhátíð og komu upp 6 minniháttar fíkniefnamál og einn ölvunarakstur. Þá voru nokkrum veitt aðstoð vegna ölvunar en þrátt fyrir það er ekki annað að sjá en gestir á Þjóðhátíð séu komnir til þess að skemmta sér og öðrum. Þá sótti þyrla Landhelgisgæslunnar aðila sem hafði fallið í fjallendi í Vestmanneyjum og eru tildrög slyssins í rannsókn.

Address

Faxastígur 42
Vestmannaeyjar
900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lögreglan í Vestmannaeyjum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Lögreglan í Vestmannaeyjum:

Shortcuts

Share