30/07/2026
Kæru landar,
laugardaginn 29. ágúst nk. fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi þar sem kjósendur svara já eða nei við spurningunni um hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB).
Hægt verður að kjósa á ræðisskrifstofu Íslands í Milano, Via Luigi Vitali 2, dagana:
Mánudag 3/8 á milli kl. 11-17
Miðvikudag 5/8 á milli kl. 16-20
Laugardag 8/8 á milli kl. 14-18
Sunnudag 9/8 á milli kl. 14-18
Mætið sem flest til að sýna málefninu áhuga. Hvert atkvæði er dýrmætt.
Bestu kveðjur
Olga Clausen
Aðalræðismaður Íslands í Milano