22/07/2026
Nyttig informasjon fra ambassaden angående EU-avstemmingen.
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA 2026
Sendiráð Íslands í Osló vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á Íslandi 29. ágúst n.k.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands mánudaginn 27. júlí.
🌟 Í sendiráðinu í Osló er hægt að greiða atkvæði milli kl. 10:00 og 15:00 alla virka daga.
Einnig verður boðið upp á sérstakan opnunartíma vegna kosninga:
• Þriðjudaginn 11.ágúst, opið til kl. 19:00
• Laugardaginn 15.ágúst frá kl. 11:00-14:00
• Þriðjudaginn 18.ágúst, opið til kl. 19:00
Ekki er þörf á að panta tíma til að koma að kjósa en myndast geta biðraðir, sérstaklega á þriðjudögum, miðvikudögum og föstudögum þegar opið er fyrir tímapantanir í vegabréfsumsóknir, og biðjum við fólk vinsamlega að sýna því skilning.
🌟 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá ræðismönnum Íslands:
Hér má finna nákvæmar upplýsingar um kjörræðismenn, staðsetningar, opnunartíma og fyrirkomulag kosninga erlendis.
https://www.stjornarradid.is/verkefni/utanrikismal/adstod-erlendis/onnur-thjonusta/utankjorfundaratkvaedagreidsla-erlendis/
Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að kynna sér vel opnunartíma og hafa samband við kjörræðismenn fyrirfram sé óskað eftir því.
🌟 Gagnlegar upplýsingar:
👉 Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
👉 Sendiráðið mælir eindregið til þess að kjósendur greiði atkvæði í síðasta lagi fyrir lok viku 34. Sé það gert má gera ráð fyrir að atkvæðið nái í rétt kjördæmi á Íslandi í tæka tíð með tilliti til póstsendingartíma. Eins og má sjá á heimasíðu Posten getur sendingartími tekið ca. viku, sjá hér: Skal du sende brev til utlandet? https://www.posten.no/sende/sende-utland/brev-utland
👉 Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst. Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega, eins og tekið fram hér að ofan, og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
👉 Íslenskur ríkisborgari sem hefur átt lögheimili á Íslandi, á kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár.
👉 Sendiráðið vekur athygli á því að eftir breytingar á kosningalögum halda íslenskir ríkisborgarar nú kosningarétti sínum í 16 ár í staðinn fyrir 8 ár eftir flutning til útlanda. Eftir þann tíma þarf kjósandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá til Þjóðskrár Íslands. Hafi umsókn hans verið samþykkt gildir hún í fjögur ár. https://www.skra.is/?PageId=d5fe850a-6938-11eb-ba7d-005056ac179f
👉 Kjörskrá verður birt 24. júlí. Eftir þann dag geta kjósendur flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár. https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/
👉 Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is
👉 Einnig má finna upplýsingar inn á síðu Landskjörstjórnar https://island.is/s/landskjorstjorn