02/07/2026
Ísland tók í dag við formennsku í Eystrasaltsráðinu af Póllandi til eins árs. Í formennskutíð sinni mun Ísland hafa áfallaþol samfélaga í öndvegi og leitast við að halda áfram og byggja á hagnýtu samstarfi og árangri fyrri formennskutímabila, í samræmi við forgangsmál Eystrasaltsráðsins um öryggi, sjálfbærni og samheldni svæðisins. Eru öll þessi þrjú forgangsmálefni höfð að leiðarljósi í formennskuáætlun Íslands.
Utanríkisráðuneytið stýrir formennskunni fyrir Íslands hönd en nýtur fulltingis dómsmálaráðuneytis, mennta- og barnamálaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og Barna- og fjölskyldustofu í störfum vinnuhópa, auk þess sem önnur ráðuneyti og stofnanir koma að vinnu eftir því sem við á.
Eystrasaltsráðið var stofnað árið 1992 og eiga þar sæti Norðurlöndin fimm, Eystrasaltsríkin þrjú, Pólland, Þýskaland og Evrópusambandið. Skrifstofa ráðsins er í Stokkhólmi.
Hægt er að kynna sér formennskuáætlun Íslands í Eystrasaltsráðinu á bæði íslensku og ensku.
Sjá frétt og hlekki í formennskuáætlun Íslands í athugasemd.