15/05/2026
Orkuöryggi og norræn seigla ⛑️
Endurnýjanleg orka er framtíðin en olía og gas skipta ennþá máli fyrir samgöngur, matvælaframleiðslu og seiglu samfélagsins 🛢️⛽️
Á þingi Norðurlandaráðs á norska Stórþinginu þann 17. apríl sl. lagði Halla Hrund Logadóttir frá Flokkahópi miðjumanna (Mittengruppen) spurningu fyrir Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, um hvernig Norðurlöndin geti eflt viðbúnað sinn á tímum vaxandi óvissu á alþjóðlegum olíu- og gasmörkuðum 📈
👉🏻 Spurningin var hvort Noregur, sem stærsti birgir svæðisins, væri opinn fyrir nánara norrænu samstarfi um viðbúnað þegar kemur að jarðefnaeldsneyti og hvort þörf væri á norrænum rammasamningi um öruggt framboð á olíu og gasi 🖋️
➡️ Forsætisráðherrann Jonas Gahr Støre lagði í svari sínu áherslu á að í eðli sínu sé orkumarkaðurinn alþjóðlegur. Hann benti þó á að yfirvöld viðbúnaðarmála á Norðurlöndum þurfi að eiga náið samtal á friðartímum til að tryggja öruggt framboð á olíu og gasi innan svæðisins á krepputímum 🤝