Jónshús

Jónshús Jónshús er félagsheimili Íslendinga í Kbh. Hýsir fræða- og menningarstarf. Bóksafn og sýning. Bókasafn er í kjallara Jónshúss.

Áfram höldum við hjónin í Jónshúsi að skoða Kaupmannahöfn, enda endalaust að sjá í heimsins bestu borg ... nú eru það ki...
14/07/2026

Áfram höldum við hjónin í Jónshúsi að skoða Kaupmannahöfn, enda endalaust að sjá í heimsins bestu borg ... nú eru það kirkjurnar ... erum ekki kirkjurækin, amk ekki ég, en kirkjur eru samt sem áður mjög áhugverðar, sögulegar og setja mikinn svip á borgina, yfirleitt glæsilegar ... auk þess athyglisvert að sjá hve margar hafa á undanförnum árum fengið nýtt hlutverk ... þeim fækkar jú stöðugt sem fara í kirkju og því þarf að kirkjunum eitthvað nýtt að gera ... fórum á kirkjurúnt og hann er hér 🙂 Halla og Hrannar á göngu um Kaupmannahöfn

01/07/2026

Sumarlokun frá 1. júlí til og með 31. júlí.
Húsið opnar aftur laugardaginn 1. ágúst kl. 10.

Njóðið sumarsins ☀️

Takk fyrir komuna 🇮🇸  starfsfólk leikskólans Hólaborg litu víð í Jónshúsi  laugardaginn 20. júní.
21/06/2026

Takk fyrir komuna 🇮🇸 starfsfólk leikskólans Hólaborg litu víð í Jónshúsi laugardaginn 20. júní.

🇮🇸✨ Þjóðhátíðardagurinn í TívolíÍslendingar og aðrir gestir fjölmenntu í Tívolí og sköpuðu frábæra stemningu á 17. júní....
18/06/2026

🇮🇸✨ Þjóðhátíðardagurinn í Tívolí

Íslendingar og aðrir gestir fjölmenntu í Tívolí og sköpuðu frábæra stemningu á 17. júní.

Á dagskránni var allt það sem tilheyrir – hátíðarræða, fjallkona og hátíðarkór sem settu hátíðlegan svip á daginn. 🇮🇸

Á dagskránni var allt það sem tilheyrir – hátíðarræða, fjallkona og hátíðarkór sem settu hátíðlegan svip á daginn. 🇮🇸
Markaðstorg þar sem mátti meðal annars finna garn og kerti. 🧶🕯️

Bake My Day bauð upp á ljúffengar ostaslaufur og snúða, Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn seldi íslenskt sælgæti og Tommi's Burger Joint sá um hamborgara og franskar 🍔🍟🍬

Gestir tóku þátt í því að þæfa Ísland.

Og svo voru það auðvitað veifurnar – allar þessar fallegu handprjónuðu veifur sem setja sinn einstaka svip á Tívolí ár eftir ár. ❤️

Til að kóróna daginn steig Retro Stefson á svið og hélt magnaða tónleika.

Það var einstaklega gaman að sjá hversu margir komu saman til að fagna þjóðhátíðardeginum og njóta samverunnar.

Nú er bara að halda áfram að fagna!

Við sjáumst á Norðurbryggju sunnudaginn 21. júní þegar Íslendingafélagið í Kaupmannahöfn heldur áfram þjóðhátíðarhöldunum. 🇮🇸🎉

Nánari upplýsingar hér
https://fb.me/e/5Rbv2bIXq

#17.júní

BÖRNIN TAKA ORÐIÐ Hvernig læra börn frá Grænlandi, Færeyjum og Íslandi sem búa hér að lesa, skrifa og tjá sig á móðurmál...
18/06/2026

BÖRNIN TAKA ORÐIÐ

Hvernig læra börn frá Grænlandi, Færeyjum og Íslandi sem búa hér að lesa, skrifa og tjá sig á móðurmáli sínu?

Í dag fimmtudaginn 18. júní 2026 kl. 16:00–17:30

Í dag kl. 16.00 bjóða nemendur Móðurmálsskólans, íslensk, grænlensk og færeysk börn gestum á sérstakan viðburð þar sem þau deila reynslu sinni af kennslu á eigin móðurmálum. Með frásögnum, upplestri og stuttum kynningum veita börnin einstaka innsýn í hvernig þau læra og nota tungumál sín í daglegu lífi.

Verið hjartanlega velkomin

Nánari upplýsingar hér👇
https://www.nordatlantens.dk/da/arrangementer/2026/b%C3%B8rnene-tager-ordet-modermaalsskolen-inviterer/?fbclid=IwY2xjawSgk4dleHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZBAyMjIwMzkxNzg4MjAwODkyAAEezXL51TXePmlZfHqHXr4QnVE8xuh3qjTrMzIDbMaFkCFgDk6NH-CrJdmvnmI_aem_S0pmdnPSdQhVuZZZ_5Rvog
Marta Sævarsdóttir

60 ár liðin frá því að Alþingi Íslands eignaðist Jónshús.Carl Sæmundsen, stórkaupmaður, fæddist á Blönduósi 14. febrúar ...
17/06/2026

60 ár liðin frá því að Alþingi Íslands eignaðist Jónshús.

Carl Sæmundsen, stórkaupmaður, fæddist á Blönduósi 14. febrúar 1886. Að loknu stúdentsprófi 1905 flutti hann til Kaupmannahafnar og bjó þar til dánardags árið 1976. Í tilefni af áttræðisafmæli sínu, sem var akkúrat fyrir 60 árum, þann 14. febrúar 1966, afhenti hann íslenska ríkinu, eða öllu heldur Alþingi Íslands, afsal fyrir húsi númer 12 við Øster Voldgade (var reyndar númer 8 á þeim tíma), skuld- og kvaðalausu. Sjálf afhendingin fór fram á þjóðhátíðardaginn, fæðingardegi Jóns, þann 17. júní 1966, og frá árinu 1970 hefur húsið borið heitið Hús Jóns Sigurðssonar, jafnan kallað Jónshús.

Carl hafði keypt húsið gagngert með það fyrir augum að gefa það Íslendingum. Ástæðan var sú að minning Jóns Sigurðssonar var Carli „eitt og allt“ og í húsinu bjó Jón Sigurðsson ásamt Ingibjörgu Einarsdóttur í 27 ár, frá byggingu þess í október 1852 og allt til dauðadags í desember 1879. Carl taldi víst að Íslendingar myndu vilja eignast húsið og til að koma í veg fyrir að þeir þyrftu að greiða fyrir það fúlgur fjár ákvað hann bara að græja málin. Jón og Ingibjörg bjuggu á þriðju hæð hússins og hefur íbúð þeirra verið endurgerð svo hún endurspegli búsetu þeirra á sínum tíma, opin öllum til skoðunar. Íbúðin er stór, tæpir 180 fermetrar, sem þótti gríðarstórt á þeim tíma enda bjuggu flestir Kaupmannahafnarbúar við þröngan kost, ekki var óalgengt að fjölskyldur byggju á 20-40 fermetrum. Skemmtilegt er því að lesa í Þjóðviljanum frá 17. júní 1966 þar sem skrifað er um íbúð Ingibjargar og Jóns: „Heldur þætti sú íbúð óhentuglega teiknuð á vorum dögum, herbergin sjö talsins en íbúðin annars dimm og ranghalamikil.“

Óhætt er að segja að gjöf Carls Sæmundsen hafi haft stóra þýðingu fyrir íslenskt samfélag í Kaupmannahöfn undanfarna rúma hálfa öld, enda hefur ávallt verið mikil starfsemi í Jónshúsi sem þróast stöðugt í takt við samfélagið og hefur hugsanlega aldrei verið öflugri en einmitt nú, tæpum 60 árum eftir að Íslendingar eignuðust húsið. #17.júní

Sjáumst í Tívolí á morgun - dagskráin hefst kl. 16
16/06/2026

Sjáumst í Tívolí á morgun - dagskráin hefst kl. 16

I anledning af Islands Nationaldag holder den islandske ambassadør i Danmark en fejringstale i Tivoli.

Í gær, mánudaginn 15. júní, heimsóttu nemendur Studieskolen Jónshús. Nemendur sem eru að læra íslensku hjá Fríðu Garðars...
16/06/2026

Í gær, mánudaginn 15. júní, heimsóttu nemendur Studieskolen Jónshús.

Nemendur sem eru að læra íslensku hjá Fríðu Garðarsdóttur.

Þau skoðuðu safnið auk þess urður þau að leysa verkefni.
Í hverju herbergi á safninu var verkefni sem nemendur áttu að leysa.

Takk fyrir komuna

Hér er linkur inn á næstu námskeið 🇮🇸🇮🇸
https://www.studieskolen.dk/da/sprog/islandsk

Adresse

Øster Voldgade 12
Copenhagen
1350

Hvad er åbningstiderne?

Tirsdag 11:00 - 17:00
Onsdag 11:00 - 17:00
Torsdag 11:00 - 17:00
Fredag 11:00 - 17:00
Lørdag 10:00 - 16:00
Søndag 10:00 - 16:00

Telefon

+4523281944

Internet side

Underretninger

Vær den første til at vide, og lad os sende dig en email, når Jónshús sender nyheder og tilbud. Din e-mail-adresse vil ikke blive brugt til andre formål, og du kan til enhver tid afmelde dig.

Kontakt Organisationen

Send en besked til Jónshús:

Del